Andvari - 01.01.1954, Blaðsíða 39
ANDVARI
Tímatal í jarðsögunni
35
Síðasti hluti þessa tímabils, plíócen, hófst fyrir um 8 milljón-
um ára, en á plíócen mynduSust skeljalögin á Tjörnesi.
Ekki er aSferS þessi þaS nákvæm, aS ekki geti skakkaS milljón-
urn ára í útreikningum; skiptir það ekki svo miklu máli, þegar
um hundruð eða þúsundir milljóna ára er að ræða, en því nær
sem dregur nútímanum, því íjarri verður nákvæmni slíkra ald-
ursákvarðana þeim kröfum, sem gera verður um nákvæmni til
tímatals. Til tímareiknings innan kvartertímabilsins, sem í heild
er ekki meira en ein milljón ára, er aðferðin ónothæf.
Kvartertímabilinu er af jarðfræðingum skipt í tvennt, jökul-
tíma eða kvarter-ísöld og nútíma. Við sjálfan jökultímann eða
kvarter-ísöldina, sem spennir yfir mestan hluta kvartertímabils-
ins, hefir ekki enn fengizt annað altækt tímatal en það stjam-
fræðilega, sem byggir á útreikningum Júgóslavans Milankowics
á hinum períódísku eða síendurteknu breytingum á möndulhalla
jarðar, lögun sporbrautar jarðar og færslu jafndægrapunkta á
jarðbrautinni, en margir jarðfræÖingar telja þessar breytingar
nægar til að skýra þær loftslagsbreytingar, er valdið hafa jökul-
skeiðum og hlýviÖrisskeiðum á víxl. Samkvæmt þessu tímatali
byrjar fyrsta jökulskeið fyrir 660 þúsund árurn, og því fjórða og
síðasta, og þar með ísöld, lýkur fyrir röskum 20.000 árum. Þess
er að geta, að þótt margir séu vantrúaðir á það, að þær sveitlur,
sem hér er um að ræða, hafi getað valdiÖ þessum miklu lofts-
lagshreytingum, eru menn þó ásáttir um, að þessar aldurstölur
séu ekki fjarri lagi.
Þótt það tímabil, nútíminn, sem liðið er frá lokum jökultím-
ans, sé ekki langt, er það þó frá vorum sjónarhóli séð hið ])ýð-
ingarmesta í jarðsögunni. 1 þeirn löndum, sem jökull huldi á
ísöld, eru öll laus jarðlög mynduð í ísaldarlok og á nútíma. Þró-
unarsaga mannkynsins frá frumstæðu steinaldarstigi til nútíma
tækni gerist á þessu tímabili. Hér er því sérstök nauðsyn ná-
kvæms tímatals, hæði fyrir jarðfræðinga og fomleifafræðinga.
Skal nú í stuttu máli drepið á þær helztu þeirra tímatals aðferða,
sem beitt hefur verið.