Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1954, Page 58

Andvari - 01.01.1954, Page 58
54 Sigurður Þórarinsson ANDVARI að ég væri dálítið taugaóstyrkur, er ég opnaði bréfið með aldurs- ákvörðuninni. Þetta var nfl. nokkurs konar prófsteinn á ösku- tímatalið. í jarðvegssniði því í Laxárgljúfri, er ég tók kolasýnis- hornið úr, er einnig að finna ljósu lögin H3, H4 og Hs, og út frá aldursákvörðun minni á H3, hafði ég þegar sumarið 1949 ákvarðað aldur Laxárhraunsins yngra og þar með kolalagsins 2.050 ± 250 ár. I greinargerð síðar hafði ég, út frá öskulögum, komizt að þeirri niðurstöðu, að þessi aldur, 2.050 ár, væri, ef nokk- uð, aðeins of hár. Hvað sagði nú Yale-háskóli? 1.940 ± 270 ár. Samræmið því eins gott og bezt varð á kosið. Hundruðum mold- arbarða hafði ekki verið rótað sundur til einskis. Oskutímatalið er í aðalatriðum rétt, og sú forsenda, að lurkalagið í mýrunum hverfi á mótum bronz- og járnaldar, um 600 f. Kr., má teljast sönnuð. Getur nú hver sem er í þeim landshlutum þar sem ljósu Heklulögin er að finna, glöggvað sig á því, hversu hröð jarðvegsmyndun hefur verið á ýmsum tímum og hversu hún hefur aukizt síðustu þúsund árin. Þegar nú er hægt að svara ýms- um mikilvægum spumingum, sem byrja á hvenær: Birkiskógar hverfa að miklu leyti af íslenzkum mýrum fyrir um 2.500 ámm. Laxárhraunið yngra er um 2.000 ára gamalt, og þar með gróður og jarðvegsmyndun á því hrauni. Sama aldurs eru hinir frægu Skútustaðagígir og aðrar gígaþyrpingar í Mývatnssveit. Mývatn í sinni núverandi mynd er um 2.000 ára, og botnlög þess sunnan Ytri-Flóa mynduð á 2.000 árum. Hinsvegar er Grænavatnsbruni, sem kominn er ofan úr Ketildyngju og er sama hraun og þekur norðurhluta Aðaldals (Laxárhraun eldra), allmiklu eldri en ösku- lagið Hs, en yngri en lagið Hr, og aldur hans því B.500—4.000 ár. í ritgerð minni um Hverfjall áætlaði ég aldur þessa mikla sprengi- gígs um 2.500 ár, og breytir Carbon14 ákvörðunin engu þar um. Um allar þessar tölur er þó þess að geta, að reikna verður með hinni mögulegu mæliskekkju, um 270 ár til eða frá. Þótt aldur Laxárhraunsins yngra sé samkvæmt Carbon14 ákvörðuninni 1940 ár, þýðir það ekki, að það hafi runnið einmitt árið sem Ágústus keisari dó, en hins vegar er hægt að fullyrða, að það sé runnið eftir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.