Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1954, Page 59

Andvari - 01.01.1954, Page 59
ANDVARI Tímatal í jarðsögunni 55 að Pyrrhus vann sinn dýrkeypta sigur á Italíu og jafnöruggt er, að það rann áður en Konstantínus varð keisari. I merkri ritgerð, sem Guðmundur G. Bárðarson birti fyrir röskum fjórum áratugum, sýndi hann fram á, að við Hrúta- fjörð eru malarkambar um 5 m yfir sjó, sem einkennast af því, að í þeim er nokkuð af skeljum nákuðungs (Purpura lapillus), og hefur sjór því þá verið hlýrri við Norðurland en hann hefur síðan verið allt fram á síðustu ár. Guðmundur gat af eðlilegum ástæðum ekki ákvarðað aldur þessara kamba, en taldi þá mynd- aða um sama leyti og lurkalagið í mýrunum. Ut frá afstöðu þessara malarkamba til ljósu laganna H3 og Hi má nú fullyrða, að þetta sé rétt hjá Guðmundi. Malarhjallamir mynduðust á hlýþurra tímabilinu á steinöld yngri, en þeir munu ekki mynd- aðir við landsig, eins og Guðmundur taldi, heldur vegna hækk- unar yfirborðs heimshafanna, vegna þess hve mikið bráðnaði á þessu hlýja tímabili af jöklum Grænlands og Suðurskautslands- ins. Fullyrða má nú, að yngra Þjórsárhraunið við Þjófafoss sé eldra en 2.500 ára og yngra en 4.000 ára og hraunið í Flóanum sé eldra en 4.000 ára, en líklega ekki meira en 6.000 ára. Hólamir háu kringum Hraun í Öxnadal em meir en 7.000 ára gamlir, því ljósu lögin nyrðra er öll að finna ofan á þeim. Flin eigin- lega keila Geysis er vngri en 2.500 ára, því að Ijósa lagið H3 gengur inn undir hana. Ýmislegt mætti enn telja, en hér skal staðar numið. Vonandi verður þess ekki lengi að bíða, að Carbon14 aldursákvörðun fáist einnig á öskulögunum H3, I Ii og Hs, en sýnishom til aldursákvörðunar hins síðastnefnda hefur verið sent til Hafnar. Fer þá að horfa vænlegar um skráningu jarð- sögu Iandsins, síðan jökultíma leið, en þó em með þessu aðeins stigin fyrstu skrefin á langri leið. Þær em svo ótal margar spum- ingarnar viðvíkjandi þessari sögu, sem byrja með orðinu hvenær.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.