Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1954, Page 89

Andvari - 01.01.1954, Page 89
andvaiu Herútboð á íslandi og landvarnir íslendinga 85 sjálfnr þáitt í vörn landsins, eftir því sem nákvæmar kann að verða fyrir mælt með lögnm'. Á árinu 1919 reis Þjóðabandalagið á legg og stórveldin sýndu í verld, að þau virtu frelsi og sjálfstæði smáþjóðanna. Óvinsam- leg innrás herveldis í ísland var því vart hugsanleg, enda hafði slíkt aldrei borið við frá upphafi íslandsbyggðar. Landið gat þess vegna haldið virðingu sinni sem fullvalda ríki, þótt það hefði engan her. Með ákvæði 71. gr. stjskr. var samt sem áður þeirrar varúðar gætt, að herútboð gæti átt sér stað með einföldu lagaboði. Og með lögurn um landhelgisvöm frá 28. nóvbr. 1919 sýndi íslenzka ríkið, að það ætlaði sjálft að halda uppi lögum og rétti bæði gegn útlendri ágengni og innlendum lögbrjótum á sviði landhelginnar. Eftir auglýsingu ævarandi hlutleysis íslenzka ríkisins liðu svo rúmir tveir áratugir þannig, að ekkert ríki óvirti eða skerti hlutleysi þess. En í maímánuði 1940 gerðist sá atburður, að hernaðarinnrás var gerð í landið gegn mótmælum ríkisstjómar- innar en án virkrar andstöðu. Elér var þó ekki óvinaher á ferð, þvert á móti, það var brezkur her, sem hingað var kominn, af því að brezka stjórnin taldi óhjákvæmilegt að hernema hér í land- inu vissa staði, sem vom hernaðarlega þýðingamiiklir, til þess að afstýra þvi, að Þjóðverjar næði þeirn. Talsmaður brezku stjóm- arinnar gaf ríkisstjórn íslands þá yfirlýsingu, að markmið brezku stjórnarinnar með hersetningu á íslandi væri það eitt, að hindra Þýzkaland í að ná á sitt vald íslenzku forráðasvæði, og að brezki herinn yrði ekki degi lengur í landinu en nauðsyn krefði vegna styrjaldarinnar. Það er ekki ætlunin að segja hér sögu þessarar hersetningar, sem af hálfu Breta var ótvíræð hernaðamauðsyn og íslandi til hamingju eftir því sem um var að gera. En með henni var að engu orðinn sá draumur, að ísland gæti með yfirlýstu hlutleysi einu saman haldizt utan athafnasvæðis stórvelda Evrópu í styrjöld eins og árin 1914—1918. Það var staðreynd, að landið var í þessu falli komið í sömu aðstöðu til styrjaldaraðila og önnur smáríki
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.