Andvari - 01.01.1953, Blaðsíða 76
72
Böðvar Jónsson
ANDVARI
voði vís. Fólkið vildi fá hærra kaup. Enginn nefndi minni vinnu
eða styttri vinnutíma, nei, en hærra árskaup, eða að vera lausa-
menn og lausakonur. Og hvað skeði? Vinnumenn, sem áður
höfðu haft í árskaup 50 kr., vildu nú fá 60—70 kr., og til voru
menn, og þar var ég einn með öðrum, sem vildu fá 80 krónur
í árskaup. Gamlir og gætnir bændur töldu þetta ekkert hóf, allt
væri þetta of hátt, enginn ynni fyrir svo miklu fé. En svo fór,
að alvara varð úr þessu. Á þessum árum fóru margir, sem áður
voru í vinnumennsku, að i)úa, þótt flestir hefði lítil efni. Fækk-
aði þá enn vinnufólki hjá bændum og kaupið hækkaði svo sem
sjálfkrafa fyllilega um þá upphæð, sem ég og fleiri höfðum sett
upp, nefnilega í 70—80 kr., og fljótlega enn meira. Samtímis
þessu kom líka nýtt til sögunnar og verkaði í sömu átt.
Það var á þessum árum, að fólk á Austfjörðum fór að veita
því eftirtekt, að þar voru flestir firðir fullir af fiski og síld, eink-
um á sumrin. Elvort heimamenn þar á Austfjörðum eiga fyrstir
sjónarvættina í þessari veiði, veit ég að fer eða fór lengi tvenn-
um sögum. Ég hefi fyrir löngu orðið að halla mér að því, að
það fyrsta, sem veiddist af fiski til muna á Austfjörðum, hali
verið árið 1872. Hinn alkunni dugnaðarmaður, Geir Zoéga,
átti þá hér í félagi með öðrum tvö þilskip, að nafni Fanney og
Reykjavík. Geir tók nú upp á því að senda þessi skip með fólk,
báta og veiðarfæri og aðrar nauðsynjar, austur á Seyðisfjörð, til
að fiska þar um sumarmánuðina. Þetta gekk vel 2 eða 3 sumur.
Skipin lágu við land, t. d. við Hánefsstaðaeyrar. Fólkið reri um
fjörðinn í grennd við skipin og fiskaði vel, kom aftur með
skipin full af góðum söltuðum fiski, verzlunarvöru. Og fiski-
fréttin barst um allt hér syðra. En ekki stóð þessi útgerð Geirs
þarna nema 2—3 sumur, enda missti hann annað skipið, Fanney,
á heimleið, með fólki og farmi. Þetta olli straumhvörfum. Bænd-
ur á Austfjörðum vildu nú fara að veiða sinn fisk sjálfir, sem
þeir kölluðu svo. En þeir urðu að fá menn og báta annars staðar
frá. Bátana fengu þeir frá Færeyjum, en fólkið kom hér að
sunnan. Nú breyttist margt. Nú drifu menn héðan til Aus:-