Andvari - 01.01.1953, Page 79
ANDVARI
Þættir um kjör verkafólks á síðara hluta 19. aldar
75
drakk ég margan sopann af lýsi á yngri árurn og varð gott af
að ég held, vissi líka fleiri gera það sama.
Matarskammtur daglega var hér við sjóinn sem nú segir: Að
morgni kaffi, einn bolli, engin mjólk, og rnoli af kandís. Með
þessu kaffi borðaði hver maður eina rúgbrauðsköku, sem svaraði
einni sneið nú yfir brauð, og við kökunni. Þessar kökur voru til-
búnar af eldastúlkunni á meðan hún eldaði morgunmatinn, sem
hafður var til máltíðar um kl. 10. Var þá oftast nóg glóð í blóð-
unum. Eldsneyti var mest mór (svörður) og þurrkað þang. Morg-
unverðurinn var vanalega fiskur, nýr frá deginum áður, eða
siginn. Á sumum bæjum voru líka borðaðar kartöflur, ræktaðar
heima. Eg vissi ekki til þess á þeim árum, að kartöflur væri þá
fluttar inn erlendis frá hér á Suðurlandi. Ef menn áttu ekki
kartöflur, var því meira borðað af brauði, og svo gulrófur, ef
til voru. En þeir voru fleiri, sem einhverja garðrækt höfðu, einnig
þeir, sem ekki höfðu jarðarábúð, sem kölluð var, en þeir nefnd-
ust tómthúsmenn, hinir bændur. Tómthúsmennirnir höfðu
smábæ fyrir sig, í skjóli hinna stærri bænda, en voru þeim
aftur að einhverju leyti skuldbundnir, reru hjá þeim um vertíð
og guldu leigu fyrir að búa í litla bænum, og svo fyrir garðhol-
una eða önnur hlunnindi, sem koti þeirra fylgdi. En snúum
nú aftur að morgunmatnum. Feiti eða viðbit hafði hver af útvigt
snmi, smjör við brauði en oftar bræðing við fiski. Ef fiskur var
borðaður nýr, fylgdu hausarnir, og líka voru sundmagar soðnir
nýir með lifur í og þótti það, sem líka var, góð máltíð, hvort
heldur var að morgni eða að kveldi, ef menn sátu í landi að
vetri til.
Miðdagsverður var borðaður klukkan 3. Var þá til matar
hiti af köldum fiski, ef eftir var frá morgninum. Stundum harðir
þorskhausar, höfuð á mann, og fylgdi þá ein kaka með handa
karlmanni en hálf handa kvenmanni. Á eftir var gefið kaffi.
Kveldmatur var vanalega borðaður kl. 8 til 9. Þá kom graut-
nr, vatnsgrautur með gulrófum í, hverjum ætluð heil rófa eða
hálf eftir stærð. Á sunnudögum var kjöt haft í graut þessum