Andvari - 01.01.1941, Side 21
ANDVARI
Jón Ólafsson
17
V.
Mjög var Jón Ólafsson bundinn við margs konar félagsskap
í Reykjavík og víðar. Flest voru það þó útgerðarfélög, er
hann var við riðinn sem hluthafi, og oft í stjórn þeirra, t. d..
þrjú togarafélög auk Alliance. Voru það hlutafélögin Defensor,
Hængur og Njáll (Hilmir), enn fremur sildveiðifélög, sel-
veiðifélag, sem rak veiði héðan um skeið, smábátaútgerð
(Drangsnes) o. fl. Þá var hann framarlega í félögum ýmsum,.
er keyptu og verkuðu fiskafurðir, og venjulega í stjórn þeirra
félaga. Hann var einn af stofnendum Sjóvátryggingarfélags Is-
lands, einnig h.f. Kol & Salt, og meðstjórnandi þess. Þá var
hann og meðeigandi í félögum, sem stofnuð voru i ýmsum
iðnaðargreinum, t. d. smjörlíkisgerðinni Ásgarður o. fl., o. fl.
Yrði hér of langt mál að telja upp öll þau félög, er Jón var
við riðinn, enda veit ég aðeins um nokkur þeirra.
í öllum þessum mörgu og óliku félögum starfaði Jón og
réð oft mestu um framkvæmdir þeirra. Fór honum það yfirleitt
prýðilega úr hendi, þótt í mörg horn væri að líta og tími
naumur til langra ráðagerða. Var mjög sótzt eftir honum í
lélög þau öll, sem nýjung voru. Bar Iþar margt til, hann
jafnan fésterkur og örlátur í fjárframlögum, hygginn, ráð-
deildarsamur og úrskurðargóður um hvern hlut, en þó sam-
vinnuþýður. Var því sjaldan hluta vant í það félag, sem Jón
ólafsson hafði lagt drjúgan skerf til. Slíkt var traust manna
á forsjá hans, og það traust mun ekki hafa orðið mönnum að
vonbrigðum.
Jón Ólafsson hafði lengi verið Oddfellow og var einnig í
félagi frímúrara. Tók hann mikinn þátt í ýmsum góðgerða-
félagsskap. Hann var mjög lengi í stjórn fríkirkjusafnaðarins.
^ ar hann og lengi í stjórn Fiskifélags Islands og í stjórn
íélags íslenzkra togaraeigenda.
Hann var sæmdur riddarakrossi islenzku Fálkaorðunnar.