Andvari - 01.01.1941, Síða 28
24
Bjarni Benediktsson
andvari
að leitast táð að stöðva allar siglingar landsmanna til Eng-
lands, en með öllu er óvíst, hve lengi þeir láta við það sitja.
Er það að vísu hverju orði sannara, að injög ómaklega kæmi
það niður á oss íslendingum, vopna- og varnarlausum, ef
slórfelld hernaðarátölc hæfust um land vort, en eins og frain
til þessa hefur horft, verður það eigi talinn ástæðulaus ótti
að gera ráð fyrir, að slíkt geti þá og þegar orðið.
Hvað sem um það er, þá er hitt víst, sem þegar var bent á
í riti þessu fyrir ári liðnu, að með hernáminu var fullvehli
íslands skert svo, að islenzka ríkið fer þar eigi með hin æðstu
ráð, heldur her erlends ríkis. Þessu sýnast menn furðu-
oft hafa gleymt. Kynni það að vísu að benda til þess, að
eigi hafi verið harkalega að oss farið. Næg reynsla hefur saint
fengizt fyrir því, sem þegar í upphafi var auðsætt, að ef í
odda skerst milli hagsmuna og laga íslendinga annars vegar og
setuliðsins hins vegar, þá eru það hin erlendu herlög, sein
ráða. Islendingar verða auðvitað að fylgja fast eftir þeim lof-
orðum, sem þeir hafa fengið um, að stjórn þeirra verði látin
al'skiptalaus. En engu að síður er það þjóðarnauðsyn, að all-
ur almenningur geri sér Ijóst, hvernig í raun og veru er um
þetta háttað, þó að eigi væri til annars en að auðveldara væri
að forðast enn frekari íhlutun um mál landsins en þegar er
orðin.
Að svo vöxnu máli hlaut það að verða ærið vafasamt, hvort
fært væri að láta almennar kosningar til Alþingis fara frarn
á þeim tíma, sem verða slcyldi samkvæmt fyrirmælum stjórn-
arskrárinnar. í 26. gr. hennar er boðið, að þingmenn skuh
kosnir til 4 ára. Síðast fóru almennar kosningar til AlþinS1®
fram 20. júní 1937. Eftir orðum stjórnarskrárinnar var þvl
kjörtímabili þingmanna lokið 20. júní 1941, og eftir kosninga'
lögunum áttu þær þá að verða síðasta sunnudag í júnímánuði-
Fyrirmæli stjórnarskrárinnar um lengd kjortímabils el
samkvæmt orðum hennar undantekningalaust og verður eig1
breytt nema eftir þeirri aðferð, sem samkvæmt stjórnarskrániU
ber að hafa um þau ákvæði hennar, er ekki er gerð sérstök
undantekning um, þ. e. a. s. til þess þarf samþykki tveggJa