Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1941, Síða 30

Andvari - 01.01.1941, Síða 30
26 Bjarni Benediktsson ANDVUíI enginn um, að ef nógu rík nauðsyn er fyrir hendi, þá sé slík ráðstöfun réttmæt. Óvefengjanlegt er, að formlegur munur hlýtur að vera á þessu á íslandi, þar sem stjórnarskráin heimilar enga undan- tekningu frá fyrirmælum um, að liámark kjörtímabils skuli vera fjögur ár, og í Englandi, þar sem svo er ástatt sem lýst var, sem og þeim löndum, þar sem fyrirvari þessa efnis kynni berum orðum að vera tekinn í stjórnarskrána. Af þögn íslenzku stjórnarskrárinnar um þetta verður þó eigi dregin sú ályktun, að skilyrðislaust sé skylt að hlýða þessu ákvæði hennar. Ber þá einkum að gæta tvenns, annars vegar þess sambands, sem þetta fyrirmæli kann að vera í við önnur ákvæði stjórnar- skrárinnar, og hins vegar þess, að til kunna að vera enn inikil- vægari réttarreglur en stjórnarskráin sjálf, svo að 'hún verði að lúta í lægra haldi fyrir þeim. Lengd kjörtímabils þingmanna hefur aldrei verið höfuð- atriði íslenzku stjórnarskrárinnar. Stjórnarskrá var fyrst sett á íslandi 1874. Allt frá þeim tíma þangað til 1920 var kjör- tímabil þingmanna yfirleitt 6 ár, og sumra þó um skeið 12 ár. Það er fyrst í stjórnarskránni 1920, sem kjörtímabilið ev ákveðið 4 ár, og hefur svo haldizt síðan. Hagkvæmisástæður hafa ráðið því, hve kjörtímabilið hefur hverju sinni verið ákveðið langt, en lengd þess haggar engu um, hvort lýðræði verði talið ríkja eða eigi, né um þýðingu kosninga yfirleitt- En þýðing kosninga er einmitt sú að tryggja lýðræðið nieð því, að almenningi gefist kostur á að ráða því, hverjir fara með það mikilvæga vald, sem Alþingi er falið. Skilyrði þess, að kjósendur geti beitt þessum rétti sínum af viti og þjóðinni til heilla eru m. a., að þeim gefist óskertur kostur á að fylgJ' ast með því, sem er að gerast, og að þeir hafi heimild til a^ hafa áhrif hver á annan og hera ráð sín saman, hvort heldui er í rituðu máli eða með fundahöldum. Þá verða þeir og a^ liafa leyfi til að kjósa hvern þann, sem kjörgengur er og fram er borinn samkvæmt íslenzkum lögum. Það er ove- fengjanlegt, að sjálf stjórnarskráin ætlast til, að þessi skil' yrði séu fyrir hendi, þegar kosið er. Meðal annars þess vegna
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.