Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1941, Page 51

Andvari - 01.01.1941, Page 51
ANDVARI Hvað olli hruni Frakldands 1940? 47 félagsbyggingarinnar og undirbúa endanlegt hrun núverandi þjóðskipulags. Þeir máttu aldrei gleyma lokatakmarkinu: lieimsbyltingunni, útrýmingu allra annarra stétta en byltingar- sinnaðra verkamanna og myndun liins nýja ríkis, þar sem verkamannastéttin fór með einræðisvald. V. Löng stund leið svo, að byltingarstefna Karls Marx hafði lítil þroskaskilyrði. Meðan stóð á umsát Parísarborgar 1870 —1871, sturlaðist verkalýðurinn í vonleysi og örvæntingu. Náðu fylgismenn Karls Marx þá um stund einræðisvaldi í borginni og hugðust að koma á eins konar sameignarríki. En her frönsku stjórnarinnar bældi uppþot þetta niður, og er talið, að um 20 þús. manna hafi látið lífið í þessari fánýtu byltingartilraun. Á hinu langa friðartímabili frá 1871—1914 hafði hin friðsamlega verkamannastefna ákjósanleg starfs- skilyrði í flestum iðnaðarlöndum heimsins, en byltingarsinn- anna gætti hvergi í verki, nema í einu landi, þar sem þjóðinni var stjórnað með hinni mestu kúgun, rangsleitni og grimmd. í Rússlandi fékk byltingarstefna Karls Marx hin beztu þroska- skilyrði. Eftir síðustu aldamót óx stóriðnaður hraðfara þar í landi. Lenin og margir aðrir lærisveinar Karls Marx beittu nú áköfum áróðri og tókst að koma á fót litlum, en mjög harð- snúnum byltingarflokki í iðjuverum Rússlands. Hin alda- gamla óstjórn og kúgun keisarans, aðalsins, kirkjuhöfðingj- anna, herforingjanna og síðast hinnar nýríku auðmannastétt- ar var með þeim hælti, að þar í landi hlaut að vera frjór jarðvegur fyrir byltingarflokk. Sú varð líka raunin á. Undir væng hinnar verstu og rangsleitnustu stjórnar, sem til var í álfunni, dafnaði kommúnisminn og varð að smitnæmum far- aldri. Heima í Rússlandi var nóg af rangsleitni og nóg af kúgun til að skapa óánægju gegn þjóðfélaginu. Og þar sem allar leiðir voru lokaðar fyrir hægfara þróun og menningarbætur, hlaut svo að fara, að mjög verulegur hluti hinna óánægðu manna teldi sig ekki sjá aðra leið til úrbóta heldur en bylt- mgu. I ritum Karls Marx og lærisveina hans voru glöggar 4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.