Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1941, Page 52

Andvari - 01.01.1941, Page 52
48 Jónas Jónsson ANDViftt fyrirsagnir og spádómar um, hversu verkalýðurinn skyldi fiamkvæma byltingu. Þegar hið rotna rússneska keisaradæmi hrundi saman undir þunga sinnar eigin eymdar og ósigru.m styrjaldarinnar, fengu. rússneskir verkamenn hentugt tæki- færi til að grípa stjórnartaumana í hinu mikla rússneska ríki haustið 1917. Eftir að bolsevikar höfðu náð völdunum, gerðu þeir tvennt í einu: að tryggja valdaaðstöðu sína heima fyrir með því að ná sams konar kúgunartaki á þjóðinni eins og keisarastjórnin hafði haft og að hefja, eins og fyrr er á drep- ið, látlausan áróður út um allan heim, með gífurlegum fjár- fórnum til að koma á fót byltingarflokkum í öllum löndum. Jafnvel ísland var ekki skilið eftir í þeirri leit og yerulegurn fjármunum varið til að koma á fót byltingarflokki hér á landi. Lenin og fylgismenn hans freistuðu í fyrstu að fylgja fyrir- mælum Karls Marx um myndun byltingarríkisins. Þeir settu á stofn einræði. Flokkur stjórnarinnar var tæplega meira cn 1 % af þjóðinni. Stjórnin kom sér upp öflugum her, lögreglu og leynilögreglu. Stjórnin bannaði alla pólitiska starfsemn nema iðkun kommúnismans. Hún reyndi að útrýma hinum grísk-kaþólsku trúarbrögðum. Hún hafði stranga ritskoðun og lét ekki prenta blöð eða bækur, nema þær, sem hún taldi sér vilhallar. Allt andlegt líf í landinu var lagt í læðing komm- únismans, nákvæmlega eins og keisarastjórnin hafði heimtað. að allir væru á hennar bandi um orðræður og rithátt. I fjár- málastarfinu gengu kommúnistar hreint til verks. Þeir tóku umsvifalaust allar auðlindir og meiri háttar atvinnuvegi af einstökum mönnum. Þeir þjóðnýttu verzlun og samgöngur, eftir því sem við varð komið. Um stutta stund lceyptu holse- vikar í Rússlandi sér frið við hina fjölmennu bændastéit landsins með því að láta þá í orði kveðnu eiga bújarðir sínar. En um leið og stjórnin var orðin nógu föst í sessi, tók hun jarðirnar aftur úr séreign bænda og braut stétt þeirra til idýðni með ógurlegri grimmd. Stjórnin hafði því njósnara um allt land, l'lokksdómstóla, kvalatæki við yfirheyrslu grunaðra manna og lögreglu og herstyrk til að beygja þegnana skil- málalaust undir vilja einræðisherra, sem studdist við örlít-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.