Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1941, Page 55

Andvari - 01.01.1941, Page 55
andvari Hvað olli hruni Frakklands 1940? 51 aröldu þá, sem risið hafði i nafni öreiganna, og stöðvunin var gerð með því að nota öll kvala- og kúgunaítæki bolsevika í baráttunni móti stefnu þeirra. En um leið og vegna kommún- ismans var líka í liinum nýju einræðislöndum útrýmt öllu frelsi, í því skyni, að byltingarstefnan gæti hvergi átt griðland i einræðisríkjunum. í þessu efni var fyrirmyndin líka frá læri- sveinum Karls Marx. VII. Hvar sem flokksdeildir kommúnista störf'uðu undir stjórn Itússa, var lagt fyrir þær að auka óánægju samborgara sinna, leggja allar uinbótaaðgerðir út á versta veg og freista að skapa beizkju, tortryggni og óvild gagnvart þjóðerni og þjóð- skipulagi, þar sem lýðfrelsi rikti. í mörgum löndum sáu hæg- fara jafnaðarmenn og frjálslyndir menn við þessari hættu og neituðu algerlega öllu samstarfi við kommúnista. í Frakk- landi varð þó önnur þróun í þessu efni. Kom þar að lokum, að mynduð var stjórn undir forustu jafnaðarmannsins Blums aneð stuðningi frjálslyndra flokka, hægfara jafnaðarmanna og kommúnista. Hafa þessi samtök verið nefnd á íslenzku Alþýðufylking. Var samfylking þessi raunverulega mynduð gegn hægri flokkunum, og tilgangurinn sá að láta kné fylgja kviði í haráttu við þá. Þóttust efnamenn landsins hér sjá byrjun þess, sem koma skyldi. Óx við það hatur þessara manna til kommúnista og hneigð til að leita samvinnu í kyrr- þey við fasista og nazista og njóta þaðan styrks til að halda velli móti sókn kommúnista. Stjórn Blums leitaðist við að gera ýmsar gagnlegar umbæt- ur og tókst að framkvæma nokkrar þeirra, en það var lítils virði móti þeim óhöppum og giftuleysi í þjóðlegu samstarfi, sem fylgdi þessari stjórn. Áttu kommúnistar mesta eða alla sök á því. Ráðuneyti Blums var ekki fyrr tekið við völdum en kommúnistar hófu verkfall i mörgum verksmiðjum og settust að í þeim eins og virkjum. Kröfðust þeir að fá stór- lega styttan vinnudag, hærra kaup og margs konar fríðindi, bar á meðal langt sumarleyfi með fullu kaupi frá atvinnu-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.