Andvari - 01.01.1941, Qupperneq 57
axdvari
Hvað olli liruni Frakklands 1940?
53
l)á eða hneppa þá í fjötra, þá gætu þeir eins vel byrjað og
látið hinum byltingarsinnuðu löndum sínum í té þrældóm eða
dauða. Síðan óx hatrið milli samborgaranna. Báðir leituðu sér
handamanna utan Frakldands. Báðir töldu sigurinn í innan-
landsátökunum svo mikilvægan, að Frakkland mætti bíða
ósigur í heimsstyrjöld, ef það væri hinn erlendi bandamaður,
sem sigraði og gæti veitt samherjum sínum í Frakklandi hjálp
inóti innlendum óvinum. Nú hafa leikar farið svo í bili, að
nazistar ráða Frakklandi, og nazistaflokkur Frakklands tek-
ur samfloklcsmenn sína í Þýzkalandi til fyrirmyndar. Darlan
og félagar hans nota þennan sigur sinn til að uppræta allar
tcgundir frelsis í Frakklandi. Kommúnistar munu verða upp-
rættir miskunnarlaust, eins og rússneskir bolsevikar „tóku úr
umferð“ alla efnamenn í þeirra landi.
Karl Marx flutti heiminum þann boðskap, að haráttan um
skiptinguna á auði vélaframleiðslunnar yrði ekki útkljáð
nema með blóðugri byltingu og lienni mundi ljúka með sigri
öreiganna og algerðri útrýmingu efnastéttanna. Þessi boðskap-
ur hafði í fyrstu nálega engin bein áhrif. En aðstaðan í Búss-
landi í fyrra heimsstríðinu gaf lærisveinum Karls Marx mjög
hentugt tækifæri. Þeir náðu völdum í þessu eina landi og
notuðu síðan mikið af fé þjóðarinnar til að kveikja hatur og
úlfúð milli stéttanna í öðrum löndum. Þar, sem þjóðfrelsi,
menning og hófsemi fór saman, eins og í Englandi, Danmörku
og Svíþjóð, unnu lærisveinar Karls Marx ekki á. Þar mynd-
uðust þá ekki heldur öfgahreyfingar efnamanna megin. Þær
þjóðir, se.m ekki leyfðu fi’æjum kommúnismans að dafna í
jarðvegi ættlandsins, standa saman sem ein heild móti innri
og ytri hættum.
Frakkland liggur nú í rústum. Sorg og hugarangur þjáir
þjóðina. Hún er þjáð í höndum útlendra og innlendra harð-
stjóra. Þessi mikla og merkilega þjóð verður nú um stund að
yjalda þungar bætur fvrir misstigin spor.
Ef Frakkar hefðu skilið hættuna 1920 og allir þjóðræknir
nienn sameinazt móti sýkingu kommúnismans, mundi hætt-
unni hafa verið afstýrt. Engum flokki hefði verið leyft að