Andvari - 01.01.1941, Blaðsíða 63
andvari
Tómstundir
59
ara manna eiga margir kost á aö kynnast og verða með þvi
vitrari og betri en áður. í þessum efnum er aðstaða nútiðar-
inanna að líkindum betri en nokkurrar annarrar kynslóðar.
Menn eiga auðveldara en áður að afla sér bókakosts, hvort
heldur er á bókasöfnum eða með bókakaupum, útvarpið flytur
niargt nýtt og gamalt úr bókmenntum og margvíslegan fróð-
leik og kennslu, enn fremur margt af beztu verkum tónlistar-
innar, flutt af ágætum listamönnum, leikhúsin sýna sjón-
leika, kvikmyndahúsin leiklist og íþróttir, málverkasýningar
og íþróttasýningar eru tíðar. Með þessum hætti gefst almenn-
ingi kostur á að lesa, sjá og heyra í tómstundum sínum marg-
falt meira en áður. Aðalatriðið er, að það, sem þannig er á
boðstólum, sé sem bezt og að hver og einn velji af því sér til
banda það, sem honum kemur bezt.
En þó að það, sem nú var talið, sé oft gott til að fylla tóm-
stundirnar við og við fyrir þá, sem hafa efni á að veita sér
það, þá fullnægir það fáum til lengdar. Flestir eru svo gerðir,
að þeim nægir ekki „að hafa eina höndina og þá þó, að þiggja
ávallt, en gefa aldrei“. Þegar vér erum áhorfendur einir og
áheyrendur, erum vér þiggjendur. Vér tökum við því, sem oss
er boðið, og ráðum ekki, hvernig það er. Þegar menn horfa á
íþrótt, t. d. sund eða skautaferð, mun flesta langa til að vera
með í hópnum. 1 gleðinni yfir snilld annars er oft sársauki
yfir því að geta ekki sjálfur neitt í þessa átt. Vér finnum þá,
það er æskilegra að geta sjálfur en að sjá, að aðrir geta,
°g að líkindum finnur hver og einn sárast til þess í þeim efn-
l|m, sem hann hefur sérstaka hæfileika til. Einmitt þar er
bending um, hvað menn ættu að stunda í tómstundum sínum.
Menn ættu að leggja stund á það, sem þá langar mest til að
geta, en skyldustarfið felur ekki í sér. Þá eru helztu líkur til,
að menn geti fullnægt innstu þrá sinni. Ævin er stutt, en listin
löng. Þess vegna er ekki að hugsa til þess, að hver einstak-
bngur geti orðið fær í mörgum greinum öðrum en þeirri, sem
heyrir til lífsstarfi hans. En hver maður ætti að geta valið.sér
eitthvert verkefni, sem hann hefur sérstaklega yndi af að fást
Vlð i tómstundum sínum, og verða betur og betur að sér i.