Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1941, Page 64

Andvari - 01.01.1941, Page 64
60 Guðmundur Finnbogason ANDVAIU Hvort sem slíkt verkefni er fræðimannlegt, bókmenntalegt, list, iþrótt eða einhvers konar iðn eða smíðar eða eitthvert starf, þá gefur það lifinu aukið gildi. Allt, sem stendur í sam- bandi við þetta eftirlætisviðfangsefni, fær meira gildi en áður, er skoðað frá nýju sjónarmiði. Viðfangsefnið verður sjónarhóll, sem litazt er um af í allar áttir, og með þeim hætti fæst margvíslegur fróðleikur og reynsla, sem mundi hafa farið fyrir ofan garð og neðan, ef ekki hefði verið þetta sér- staka viðfangsefni. Slík viðfangsefni hef ég leyft mér að skíra „hugföng“. Ég man eftir því, hve einkennilegt mér þótti það, er ég las um prófessor Carl Lange, frægan danslcan lækni og rithöfund. Hann var mjög fjölmenntaður maður, en hafði þó valið sér sérefni, sem hann stundaði í frístundum sínum- Það var Afríka. Hann var hverjum manni fróðari um Afríku- — Ef vér gáum að, þá er það tómstundavinnan, sem haldið hefur uppi íslenzkri menningu frá öndverðu og fram á vora daga. Bókmenntir vorar og þjóðleg fræði eru nálega öll unnin eingöngu í hjáverkum. Hinn andlegi arfur vor er sú vinna, sem unnin var af ást á verkefninu sjálfu, verk, sem menn unnu sér til hugarhægðar, en hvorki sér til lofs né frægðar. Það kom fyrst eftir á. Og ef vér komum upp á þjóðminja- safnið, verður hið sama uppi á teningnum. Sú list, sem þar er að sjá, er langmest tómstundavinna. Það er óneitanlega merkilegt, að nálega liið eina, sem varan- legt gildi hefur af störfum forfeðra vorra, skuli vera það, sem þeir unnu í tómstundum sínum, og þó er það skiljanlegt- Skylduverkin voru til þess að viðhalda lífinu. Þau varð að vinna, hvort sem mönnum likaði betur eða verr. Hitt voru óskastörfin, þau sem andinn setti sitt varanlegt mót á. Ver verðum eflaust einnig í framtíðinni að lifa að miklu leyti a andlegum afurðum tómstundavinnunnar. Því meiri ástæða er til að gera sér Ijóst, með hverjum hætti bezt væri hægt að stuðla að þvi, að sem flestir fyndu eitthvert hugfang, seni yi'ði þeim þroskavænlegt og komið gæti menningu vorri að liði. Auðvitað ætti það fyrst og fremst að vera hlutverk skól-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.