Andvari - 01.01.1941, Page 89
ANDVARI
Nokkrar rannsóknir á náttúru landsins
85
ásamt aðstoðarmanni, sem fenginn hefur verið' á hverjum
stað. Við borinn vinna þannig tveir menn, og er kostnaður
við mannahaldið aðalrekstrarkostnaðurinn, en nokkur
kostnaður er einnig í borhausunum, benzíni o. fl. Enn sem
komið er hafa boranirnar orðið nokkuð dýrar af þeim
ástæðum, að þær hafa gengið of seint. Mun hér nokkuð um
að kenna æfingarleysi í meðferð borsins, en einnig og sér-
staklega því, að vantað hefur heppileg tæki til þess að fóðra
borholurnar jafnharðan, en það virðist víða vera nauðsynlegt,
eins og jarðlögum er hér háttað. Má vænta þess, að lir þessu
verði bætt fljótlega, svo að borunarkostnaður verði lægri. Bor-
inn á að geta borað 3—6 metra á dag að meðaltali, en ýmsar
tafir hafa dregið verulega úr borhraðanum á flestum holun-
um. Reynslan hefur þegar sýnt það, að á þeim stöðum, sem
heitt vatn er fyrir, má oft auka hitann og vatnsmagnið með
til þess að gera grunnum borunum. Slíkar boranir gefa enn
fremur mikilsverðar upplýsingar um jarðlagaskipun og eðli
jarðhitans, sem að gagni má verða við boranir eftir jarðhita
síðar meir.
Síðan rannsóknaráðið eignaðist hor þennan, hafa verið
framkvæmdar aneð honum eftirtaldar boranir:
1. 15 metra djúp borun hjá Laugarvatni sumarið 1939. Var
hætt við borholu þessa án þess að árangur fengist, vegna
þess að demantsborkrónur vantaði. Borað var mestmegnis
í þursaberg eða harðnaðan hveraleir.
2. 34 metra djúp hola hjá Fagrahvammi í Ölfusi. Jarðvegur-
inn var mestmegnis kísilrunnin, sundursoðin klöpp eða
harður leir. Úr holunni kom um % lítri á sek. af sjóðandi
vatni, auk nokkurrar gufu. Þegar holan er opin, stendur
stöðugt gos úr henni, 8—10 metra hátt, þegar logn er.
Þrýstingur gufunnar er um 2 loftþyngdir, þegar holan er
lokuð.
3. Rúmlega 80 metra djúp borhola i Glerárgili ofan við
Akureyri. Borað var eftir heitu vatni. Bar borunin ekki
tilætlaðan árangur. Enda þótt blágrýti sé þarna í kring,
var mestmegnis borað gegnum molaberg, sand eða leir. Af