Andvari - 01.01.1941, Qupperneq 90
86
Steinþór Sigurðsson
ANDVARI
þessum ástæðum voru veggir borholunnar ótraustir, svo
stöðugt hrundi niður í holuna. Tafði þetta mjög borun-
ina, og varð að lokum að hætta við hana.
4. Um 30 metra djúp hola í Glerárgili, skammt frá hinni
borholunni. Jarðlagaskipun var þarna sú sama og á fyrri
staðnum, og borunin gekk af þeirri ástæðu mjög seint.
5. —7. Þrjár borholur neðst í túninu við Hóla í Hjaltadal.
Allar voru holur þessar um 30 metra djúpar. Jarðhiti er
í Hjaltadal hjá Reykjum, um 10 km 'framar en Hólar.
Enn fremur kemur volgt vatn fram á noklcrum stöðum í
dalnum. Var ætlunin að rcyna að bora niður úr jökul-
ruðningnum og árframburðinum, sem liggur í botni dals-
ins hjá Hólum, og eitthvað niður í fast berg, til þess að
ganga úr skugga um það, hvort jarðhiti væri þar undir.
Var reynt að fóðra liolurnar með vatnsveitupípum, en
ekki tókst að komast með þær dýpra en að ofan greinir.
og var þá ekki enn komið niður á fast berg. Varð því að
hætta við borun þessa að sinni, þar til tæki eru fengin til
þess að fóðra með holuna.
8. Tæplega 40 metra djúp borun hjá Brautarholti á Skeið-
um. Borað mestmegnis gegnum grágrýtishraun. Úr hol-
unni kemur tæpur lítri á sek. af 57° heitu vatni. Á þess-
um slóðum virðist vera mikið af heitu vatni skammt frá
yfirborði jarðar, en þrýsting vantar á það, svo að það
komi upp á yfirborðið. Mældist mest 67° hiti í holu þess-
ari, en vatnið mun blandast kaldara vatni á uppleiðinni.
Vatnið náðist fyrst upp á yfirborðið eftir að búið var að
þétta holuveggina með sementi.
9. 20 m djúp borhola í Hveragerði, vestast á hverasvæðinu.
Borað gegnum leir og hraun. Holan gefur 1 1/sek. af sjóð-
andi vatni og mikið af gufu. Ef holan er opin, gýs stöðugt
úr henni upp í 20 m hæð í logni. Þrýstingur gufunnar er
um 3% loftþyngd, þegar holan er lokuð.
10. 50 m djúp borun hjá Litla-Geysi í Ölfusi. Úr holunni
kemur 0,6 1/sek. sjóðandi vatn og mikil gufa.