Andvari - 01.01.1938, Page 12
8
Jón Þorláksson
Andvari
býr í prýðilegu steinhúsi, en sér engin úrræði til að
borga það.« Sýnir þetta athygli hans og varfærni.
Rétt eftir að Jón kom heim hingað, gekkst hann fyr-
ir stofnun Iðnskólans. Aður hafði Iðnaðarmannafélagið
haldið hér uppi um hríð litlum teikniskóla. Jón undir-
bjó stofnun Iðnskólans fyrst með fyrirlestri í Iðnaðar-
mannafélaginu haustið 1903, en síðan flutti hann einnig
fyrirlestur um málið meðal fslenzkra iðnaðarmanna í
Kaupmannahöfn. Skólinn byrjaði haustið 1904, og gekkst
Jón fyrir því, að Alþingi 1905 veitti nokkurn styrk til
hans. Iðnaðarmannafélagið reisti svo hið myndarlega
skólahús við Vonarstræti, og þangað fluttist skólinn 1906
og hefur verið þar síðan. Skóli þessi hefur gert mikið
gagn. Jón var forstjóri hans frá byrjun og fram til 1911.
Munu iðnaðarmenn þessa bæjar lengi minnast forgöngu
hans við stofnun skóla þeirra.
í ársbyrjun 1905 varð Jón landsverkfræðingur, tók
við því starfi af Sigurði Thoroddsen, sem þá varð kenn-
ari við Menntaskólann. Aðalstarf Jóns varð nú forstaða
vegagerða og brúargerða landssjóðs. Sumarið 1906 fór
hann um landið og mældi upp allar flutningabrautir og
flesta þjóðvegi. Komst þá fyrst á föst áætlun um vega-
gerðir yfir allt landið. Veturinn á undan hafði hann verið
erlendis, mest í Noregi, til þess að kynna sér vegamál
þar. Það urðu tillögur hans, að akbrautir yrðu lagðar
um alla aðalvegi landsins og akfær vegur heim að hverj-
um bæ í sveitunum, en járnbraut frá Reykjavík til Suð-
urláglendisins. Bílar voru þá enn eigi komnir í notkun,
eða orðnir þau samgöngutæki, sem þeir síðar hafa orð-
ið. Brúasmíði varð eitt af helztu verkefnum landsverkfræð-
ingsins. Jón smíðaði fjölda brúa, og margar þeirra úr
steinsteypu. Stærstar þeirra eru Fnjóskárbrúin og brúin
á Norðurá. Fnjóskárbrúin var, þegar hún var byggð.