Andvari - 01.01.1938, Blaðsíða 14
10
Jón Þorláksson
Andvari
anir um verkið og réð því, að Gvendarbrunnar voru
valdir fyrir valnsból bæjarins. Var síðan danskur verk-
fræðingur, Hansen að nafni, fenginn til þess að standa
fyrir framkvæmd verksins. ]ón átti einnig sinn þált í
því, að hafnargerðin hófst hér, sem Kirk verkfræðingur,
danskur maður, stóð fyrir. Þess má einnig geta, að ]ón
gekkst á þessum árum fyrir stofnun Baðhúss Reykja-
víkur. Hann var yfirleitt á þeim tímum meira eða minna
viðriðinn flest verkleg fyrirtæki hér í bænum. Þegar ráð-
izt var í stofnun Eimskipafélags íslands, nokkrum árum
síðar, var hann kosinn í stjórn þess. Hann var sívinn-
andi, skrifaði mikið um áhugamál sín og var forsvars-
maður þeirra á mörgum mannfundum.
Sumarið 1905 stofnuðu ýmsir menn í Heimastjórnar-
flokknum, bæði þingmenn og utanþingsmenn, tvö blöð,
>Lögréttu« í Reykjavík og »Norðra« á Akureyri. ]ón
var einn þessara manna. Var hann þegar í byrjun kos-
inn í stjórn þess félags, sem gaf »Lögréttu« út, og var
í henni alla tíð, meðan félagið gaf blaðið út, eða fram
til ársloka 1918, en þá keypti ég blaðið. Mest af því,
sem ]ón skrifaði á þessum árum, er að finna í >Lög-
réttu«. Honum var annt um gengi blaðsins, og hann var
mjög viðfelldinn í samvinnu, enda þótt hann þætti þurr
á manninn við ókunnuga. í sambandi við afskipti hans af
á blaðamennskunni má geta þess, að árið 1912 mynduð-
um við tveir ásamt Pétri Halldórssyni, nú borgarstjóra,
Sigurði Kristjánssyni bóksala og ]akobi Kristjánssyni
prentara, sem Iært hafði vélsetjarastarf erlendis, félag til
þess að fá hingað fullkomnari prentunartæki en her
höfðu áður verið til, setjaravél og hraðpressu, sem var
afkastameiri en þær, sem fyrir voru. Við ætluðum að
leggja prentsmiðjunni »Gutenberg« til þessi áhöld og
höfðum samið um þetta við forstöðumann hennar og