Andvari - 01.01.1938, Page 21
Andv»ri
Jón Þorláksson
17
ins. En stjórn Framsóknarflokksins rauf þá þingið og
lét fara fram kosningar, taldi þessa breytingu svo rót-
tæka, að hún mætti ekki komast á, án þess að hún væri
borin undir atkvæði kjósendanna. Vann Framsóknar-
flokkurinn sigur og hafði nú hreinan meirihluta þingsins
með sér. En Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn
höfðu þá aðstöðu í efri deild. að þeir gátu hindrað þar
frarngang allra mála fyrir stjórnarflokknum. Kváðust þeir
beita því valdi, sem þeir hefðu til þessa, ef þeir fengju
ekki leiðréttingu á kosningafyrirkomulaginu. Út úr þessu
varð svo samkomulag um það kosningafyrirkomulag, sem
Uu er í gildi. En Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðis-
flokkurinn fóru með stjórn landsins fram til 1934 (Ás-
9eir Ásgeirsson og Magnús Guðmundsson).
I ársbyrjun 1933 varð Jón borgarstjóri í Reykjavík.
^ar margt til þess, að honum var það starf hugþekkara
en stjórnmálastríðið, sem hann hafði nú átt í allt frá
Þv>> er hann kom á þing 1921. Hann hafði átt mikinn
kátt í öllum framfaramálum bæjarins á mestu vaxtarár-
u,n hans. Og nú voru þau mál tvö, sem hann hafði
^estan áhuga á, bundin við bæinn, en það var Sogs-
Vlrkjunin, sem þá stóð til að ráðizt yrði í, og svo jarð-
fútaleiðsla frá hverunum við Reyki í Mosfellssveit til
uPphitunar húsa í bænum. Þessi mál taldi hann nú að-
elmálin, sem fyrir lægju til úrlausnar, og í borgarstjóra-
sföðunni átti hann hægt með að beita sér fyrir þeim.
nann var því ánægður með þessa stöðu og sinnti henni
uf einlægum áhuga. Hann hafði að undanförnu verið
ormaður Sjálfstæðisflokksins, en fyrir þingkosningarnar
1934 sagði hann af sér formennsku flokksins og lýsti
Vf>r> að hann byði sig ekki fram til þingmennsku, en
ræ9i sig út úr afskiptum af stjórnmálum. Síðasta verk
ans > þágu Iands og bæjar voru samningarnir um virkj-
2