Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1938, Page 38

Andvari - 01.01.1938, Page 38
Andvari Sveitakonan — móðir og amma vor allra. íbúarnir í veröld þagnarinnar eru að sjálfsögðu ótelj- andi og að sama skapi torvelt að finna þá að máli, hafa upp á þeim. Fræðimenn og skáld velja sér það hlutskipti að leita að þessum einstaklingum. Og þeirra metnaður er það að draga einstaklingana fram í dagsljósið, eða gera grein fyrir þeim á einhvern annan hátt, ýmist til varúðar, eða þá til fyrirmyndar, ellegar til skýringar við- fangsefnum. Til dæmis er ættfræðin gerð út af örkinni í þeim vændum að finna undirrót kynkvísla og kynstofna. Því þögulla er í ættfræðinnar álfu, sem fjær dregur lif' andi einstaklingum. En leitin eftir uppruna gefur útsýn yfir djúpa dali og langar strendur forfeðra og mæðra þeirra, sem lifa. Og sú leit gefur bendingar um hæfi' leika, sem leggjast í ættir. Og spor einstaklinganna, ef þau verða rakin, gefa til kynna baráttu, sigra og ósisra þeirra einstaklinga, sem götuskorningana hafa gert, eða hleðslurnar þær, sem vallgrónar tóftir sýna lítils háttar til minja um líf, sem er horfið fyrir löngu. Þegar litið er yfir mosavaxnar hleðslur eyðikots og þau eru mýmörg i landinu — vaknar upp í hugskoti mannsins, sem litast þar um, spurningar hver af annarn og þessi þó fyrst: Hvenær var manna byggð hér? Þeirri spurningu kann jarðabók að geta svarað, eða þá máldagar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.