Andvari - 01.01.1938, Page 75
Andvari Staðþekking og áttamiðanir Njáluhöfundar 71
Gunnars á Hlíðarenda, þá er hann sat fyrir Otkeli úr
Kirkjubæ við vað hjá Hofi. í stað þess að ríða beinustu
leið frá Hlíðarenda vestur að Hofi tekur Ounnar miklu
norðlægari stefnu, sem bezt má sjá af þeim ummælum,
að hann hafi riðið ofan til vaðs hjá Hofi eftir að hann
kom til Rangár og því næst að loknum bardaganum
þar >upp eyrarnar*.
Undarlegustu dæmin um leiðirnar frá vöðunum í ná-
Srenni Keldna birtast þó í sambandi við frásagnirnar um
ferðir Hlíðarendamanna til engja sinna í Vestur-Land-
eYjum. Þess er beinlínis getið í Njálssögu, að Gunnar
a Hlíðarenda hafi tekið Móeiðarhvol af þeim feðgum
undan Þríhyrningi. Það er því varla blöðum um það að
fletta, hvar engjar þessar hafi verið, sem sé fyrir sunnan
^verá, í Móeiðarhvolslandi. Beinasta leiðin frá Hlíðar-
eada til engjanna hefir því að sjálfsögðu legið meðfram
Þverá, en með óyggjandi vissu má ráða af frásögnun-
Utti. að Njáluhöfundur lætur ekki Gunnar fara þenna
Veg, heldur liggur leið Gunnars fram hjá Hofi. Meira
að segja notar hann ekki til heimferðar veg þann aust-
Ur til Fljótshlíðar, sem ætla má, að legið hafi frá
Hofsvaði, heldur fer Gunnar lengra upp með Rangá í
áttina til Keldna. Liggur það þá beinast við, að hann
tafi krækt alla leið upp á alfaraleiðina af efri Rangár-
v°llum til Fljótshlíðarinnar.
Sagt er, að Mörður Valgarðsson á Hofi hafi haldið
nlósnum um engjaferðir þeirra Hlíðarendamanna. Þetta
ber því traust vitni, að Njáluhöfundur gangi út frá því
fem gefnu, að leið þeirra liggi fram hjá Hofi. Staðfest-
lst þetta og af þeirri frásögn hans, að fjandmenn Gunn-
ars ákveða að veita honum fyrirsát við Rangá, því vit-
anlega taka þeir sér stöðu þar sem þeir vissu, að leið
Gunnars mundi liggja.