Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1938, Page 78

Andvari - 01.01.1938, Page 78
74 Staðþekking og áttamiðanir Njáluhöfundar Andvari Samkvæmt þeim hefir viðureign Gunnars og Egils í Sandgili staðið við Knafahóla en ekki við Rangá. Þessa arfsögn mun Njáluhöfundur hafa þekkt. Við Otkel úr Kirkjubæ berst Gunnar við garð hjá Hofi, en ekki við vað hjá Hofi. Þar að auki er helzt svo að sjá sem Njáluhöfundur hugsi sér, að orustan hafi staðið Valla megin við ána. Það sem þó sérstaklega bendir til þess, að höfundurinn hafi á þessu sviði hagrætt arfsögnunum um vopnaviðskipti Gunnars, er það, að hann virðist láta alla bardagana vera háða við vöðin yfir Rangá. Þessa getur beinlínis um tvo þeirra, — við Þorgeirsvað og Hofsvað, og sjálfsagt hefir Gunnar að ætlun höfundar, riðið svo sem leið lá frá Knafahólum til vaðsins á Rangá, þá er hann barðist við Egil — þótt það sé ekki beint tekið fram. Gefur þetta atriði ágæta skýringu á því, hvers vegna Njáluhöfundur stöðugt lætur Gunnar berjast við óvini sína á Rangárbökkum. Vfirleitt eru staðhættir meðfram vegum mönnum hvergi svo minnisstæðir sem við vöð á ám. Það, sem allra mest hefir verið fundið staðþekkingu Njáluhöfundar við Rangá til foráttu, er frásögn hans um för Lýtings á Sámsstöðum og bræðra hans til skóg- anna fyrir austan Rangá, eftir að þeir höfðu vegið Hösk- uld Njálsson í nágrenni við Sámsstaði. Nær liggur þó að taka frásögn þessa sem bendingu um hið gagnstæða. Vegna þess að höfundurinn minnist tilvalins felustaðar á leiðinni til Fijótshlíðar í skógunum austan Rangár, lætur hann þá bræður leita hælis þangað eftir víg Hösk- ulds. Og kynni Njáluhöfundar af fylgsni þessu leyna sér heldur ekki. Sökum þess, að bræðurnir eru svo óvar- kárir að tala saman, verða Njálssynir þeirra varir og ganga á hljóðið >og sjá hvar þeir Lýtingur eru við læk einn. Skarphéðinn hleypur þegar yfir lækinn og í niel-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.