Andvari - 01.01.1915, Blaðsíða 57
1913 og 1914.
49
botninum og — í silungamögum. — í flóanum milli
Neslanda-skagans og Voga var mikið »leirlos« síðari
hluta dags 25. júlí. Það var sólskin og blíða allan
daginn og hitinn í vatninu orðinn 16,4° kl. 5^2 e. m.
Vatnið var mjög gruggugt og víða var gruggið í gár-
um og tært á milli. Eg safnaði grugginu og reynd-
ist það smákekkir af grænþörung einum, Anabœna.
Botnleðjan sýndi greinilega brennisteinsvatnsefnis-
verkun á silfur og lyktaði af þessu efni.
Næstu daga á eftir var mikill hiti (um 20° um
hádegi) og bjuggust menn við »hitasilung«, og gat eg
vel skilið, að ekki mundi vera holt fyrir fisk að
vera i vatninu, eins og það var orðið þenna dag úti
fyrir Vogurn. Þó varð samt enginn »hitasilungur« í
það skiftið. Hann hefir ánnars sýnt sig oft síðan
1904, t. d. árin 1910, 1911 og 1912, en nú er búið
að stemma stigu fyrir því með samþykt Veiðifélags-
ins, að of mikið sé veitt afhonum (mest 6000 á bæ).
Athuganir mínar í þetta skifti styrktu mig enn betur
í þeirri skoðun, að loftleysi og eitraðar lofttegundir
úr rotnandi botnleðjunni séu aðalorsakirnar lil »hita-
silungs«.
Mýbit var ekkert við vatnið þessa daga, eg sá
varla bitvarg, enda hafði hann verið lítill þetta sum-
ar. Aftur á móti voru feiknin öll af smáflugu norður
á vatninu í kringum Voga og í Teigunum. Af stóru-
flugu var lítið. Stefán gaf mér þessar upplýsingar um
ílugu-göngur við vatnið: 1. ganga af stóruflugu (topp-
flugu) kemur hálfum mánuði eftir að ís leysir af
vatninu (eftir isabrot), svo kemur litlafluga (rykmý,
1. ganga) fáum dögum seinna og svo mijvargurinn
(bilmýið, 1. ganga) fáum dögum á eftir þvi. Þegar
svo hálfur mánuður er liðinn frá 1. mývargsgöngu,
Andvari XL. 4