Andvari - 01.01.1915, Síða 60
52
Fiskirannsóknir
13,3 m. 10,5°
19 — 10,0°
Kl. 1 e. m. 0 — (í yfirborði) 14,7°, lofthiti 15,5°
í kaldavermslalind við vatnið 2,7°.
Á 4—5 m. dýpi var töluverður gróður af nykru
og mara.
í botnleðjunni var margt af smáskeldýrum (Pisi-
diumj, innanum gróðurinn mikið af stórum bobbum
(Limnœa), smákröbbum og vorflugulirfum og mörg
hornsíli með löndum. Sviílifið var mjög lítið. Við
vatnið var nokkuð af ílugum.
Silungurinn í vatninu er eingöngu bleikja. Er
hún veidd á vorin, þá er ísa leysir og á haustin á
riðum, í lagnet, og eru hrygnurnar 2^/a—31/2 kg., en
hængarnir 2x/2—4x/2 kg., eða úti I djúpinu, og er sá
fiskur minni, V4—IV2 kg. Stundum er dregið á undir
ísi eða dorgað. Þegar hitna fer í valninu, hverfur
silungurinn frá löndum og dregur sig niður í djúpið.
Ársveiði gat Benedikt eklti sagt mér.
Á veturna al-leggur vatnið. Fuglvargur er enginn
á því.
Asmundarstaðavatn kannaði eg 17. júlí. Það er
eitt hið minsla af hinurn mörgu vötnum, sem eru
alveg úti við sjó á Sléllunni, skilin frá honum með
mjóu malarriíi (gamlar víkur). Það er 1—IV2 m. á
dýpt, með leðju í botni og nokkurum maragróðri.
Dýralíf varð eg ekki var við í leðjunni, og ekkert
sviílíf, en mikið af bobbum og vorllugulirfum á stein-
um við bakkana og allmikið af dauðri og lifandi
vorílugu. Kl. 31/2 e. m. var hitinn í vatninu 12,2°
en 8,5° I lofti. Vatnið bolnfrýs aldrei, enda eru frost
sjaldan hörð þar úti við sjóinn. Bleikja gengur stund-
um I vatnið úr Eggversvatni, sem er miklu stærra