Andvari - 01.01.1915, Síða 82
74
Fiskirannsóknir
etið nál. 1 m upp frá sandinum. Stólparnir voru
allir etnir á hinn einkennilega hátt, að þeir liöfðu,
eins og Árni hreppstjóri orðaði svo heppilega, fengið
»mitti« á sig: etist þegar frá hotni dýpra og dýpra
inn fyrst í stað, en svo aftur minna og minna, eftir
því sem dró nær efri takmörkum átsins. Margir
voru örmjóir í »mittið« og hrotnaðir þar.
Það hyggja menn á Raufarhöfn, að ekki hafi
orðið vart við tréætuna þar, fyrri en eftir síðustu
aldamót. Um það leyti settust Norðmenn þar að til
síldarveiða. Komu þeir með skipsskrokk með sér,
sem þeir lögðu á höfnina sem geymsluhús. Lá hann
þar lengi, en sökk að lokum, og liðaðist smámsam-
an í sundur. Halda menn að tréætan hafi komið í
þessu skipi, og er það næsta sennilegt. Eg hefi áð-
ur skýrt frá því, að eg hafi fundið tréætu í kili á
þesskonar geymsluskipi á Reykjavíkurhöfn. Við á-
drátt í liöfninni fékk eg brak úr skipi þessu í vörp-
una og var það alt gegnetið og urmull af lifandi tré-
ætum í því, og margar þeirra mæður með egg eða
unga undir kviðnum. Hugsanlegt er þó, að dýrið
hefði borist með lausum bryggjutrjám vestan með,
t. d. úr Hrísey, en miklu ólíklegra er það. Eins lík-
legt að Hríseyjar-tréætan væri einmitt komin í skip-
um frá Noregi.
En hvernig sem tréætan nú er komin til Raufar-
hafnar, þá er það víst, að hún þrífst þar vel, þó að það
sé einn nyrzti staður hér á landi, enda eru ísalög frem-
ur sjaldgæf þar og sjór nógu saltur. Eg mældi þris-
var seltuna, meðan eg dvaldi þar, og var hún þannig:
15. júlí kl. 4e.m., 32,75%o, sjóhiti 12,2°, lofthiti 9,8°
17. — — 9f.m., 31,18%o, — 10,4°, — 7,5°
20. — — 9f.m., 32,36°/oo, — 9,6°, — 10,3°