Fálkinn - 13.06.1966, Qupperneq 2
CRCTTISOHRH
í RÖGGVATEPPIÐ
RÖGGVAHNÝTING TÖMSTUNDAIÐJA FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
Loksins getið þér fengið keypt efni í íslenzkt
röggvateppi (ryateppi). 100% íslenzkt ullar
garn (Grettisgarn), botn 75x140 cm, munstur,
nálar og trélisti, allt í einum poka
MJÖG HAGSTÆTT VERÐ
Sölustaðir: Gefjun-lðunn Kirkjustræti SlS Austurstræti og kaupfélögin.
ULLARVERKSMIÐJAN GEFJUN AKUREYRI
Blaðamannskonan var úti
að ganga með lítilli dóttur
sinni. Þá sjá þær manninn
hennar á gangstéttinni hin-
um megin við götuna, og
litla telpan bendir og segir:
— Mamma, þarna er mað-
urinn, sem sefur á sófanum
heima á hverjum sunnudegi.
—v—
Gvendur á Langsíðu hef-
ur varpað akkerum í
friðarhöfn hjónabandsins, og
nokkrum vikum síðar fæðir
konan honum myndarlegt
sveinbarn. Nokkrum dögum
síðar hittir presturinn hann
á förnum vegi og segir:
— Ég heyri sagt, að þú
hafir eignazt barn, Guð-
mundur. Var það ekki í
fyrsta lagi?
— O, seisei nei. Strákur-
inn er stór og digur og alveg
fullburða.
— Þér dansið ágætlega,
ungfrú Klængs.
— Því miður get ég ekki
sagt það sama um yður.
— Jú, það gætuð þér, ef
þér væruð jafnleikin í að
ljúga og ég er.
—v—
— Þú verður að afsaka,
góði vinur. Ég kyssti konuna
þína í misgripum í myrkrinu
í gærkvöldi.
— Æ, minnstu ekki á það.
Mér varð það sama á núna
fyrir skömmu.
—v—
Gústi á Leirubakka og ná-
granni hans eru að tala um
gin- og klaufaveikina og
Gústi segir: — Þessi gin- og
klaufaveiki getur nú ekki
verið eins slæm og þeir segja
í blöðunum. Að minnsta
kosti var það ekki í mínu
ungdæmi. Þá var ég alltaf
með gin- og klaufaveiki á
hverjum sunnudagsmorgni
eftir skröllin á laugardags-
kvöldunum.
— Við vitum öll, að jörð-
in er hnöttótt, sagði kenn-
arinn. — Heyrðu Lárus,
mundir þú geta gengið kring
um hnöttinn?
— Nei, ómögulega. Ég
snerist um öklann fyrir hálf-
um mánuði.