Fálkinn - 13.06.1966, Side 6
22. tbl. — 39, árg. — 13. júní 1966.
EFIMI
SVARTHÖFÐl SEGIR ........................... 6—7
ALLT OG SUMT................................ 8—9
ÞESSI FJÖLSKYLDA ER BÖNNUÐ, athyglisverð
grein ................................. 10—12
LÍF OG HEILSA, eftir Ófeig J. Ófeigsson ..... 13
LISTIN AÐ HLUSTA ......................... 14—15
UNDARLEGIR HLUTIR ........................... 15
SOFIA, CHAPLIN OG BRANDO, myndir og grein 16—20
DRAUGASKIP í NORÐURSJÓ ...................... 21
BRENNIMERKT. framhaldssaga eftir Erik Nor-
lander ................................ 22—24
SÁLFRÆÐI DAGLEGA LÍFSINS, nýr þáttur eftir
Amalíu Líndal ............................. 25
FURÐUR HIMINS OG JARÐAR, eftir Hjört Hall-
dórsson ............................... 26—27
HJÓLIÐ SNÝST, grein um fyrsta kassabílstjórann,
eftir Guðmund Þorsteinsson frá Lundi... 28—30
HÁRKOLLUR ERU BETRI ......................... 31
ARFUR ÁN ERFINGJA, framhaldssaga eftir Eric
: Ambler .............................. 32—34
STJÖRNUSPÁ .................................. 35
í SVIÐSLJÓSINU ........................... 36—37
BARNASAGA ................................... 47
FORSÍÐUMYNDIR: Úr Sundlaug Vesturbæjar. Ljósmynd:
Rúnar Gunnarsson.
1 NÆSTA BLAÐI ver3ur grein um Aga
Khan sem er leiðtogi einnar greinar Mú-
hameSstrúarinnar. Steinunn S. Briem rœ3-
ir við Steindór Hjörleiisson um sjónvarpið
og íleira. Grétar Oddsson skrifar grein
um „minkaeldi, malarnóm og mörland-
ann". Þá er grein um ióstureyðingar, um
furðulega gáfu ungrar rússneskrar stúlku
og um þann möguleika að frysta manns-
likama og geyma hann þannig óskemmd-
an ef til vill þúsundir ára. Enn fremurfóru
þeir Grétar Oddsson og Rúnar Gunnars-
son út og sveimuðu um göturnar og
spurðu fólk ýmissa spurninga og tóku af
því myndir. Þann þátt köllum við „Hirt
upp af götunni" og hann kemur í nœsta
blaði. Og svo koma auðvitað föstu þœtt-
irnir eins og venjulega.
Ritstjóri: Sigvaldi Hjálmarsson (áb.). Blaðamenn: Steinunn S.
Briem, Gretar Oddsson. Ljósmyndari og útlitsteiknari: Rúnar
Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Hrafn Þórisson. Aughjsingar:
Fjóla Tryggvadóttir. Dreifing: Kristján Arngrímsson. Vtgefandi:
VikublaðiO Fálkinn h.f. AÖsetur: Ritstjórn, afgreiösla og auglýs-
ingar: Grettisgötu 8, Reykjavík. Simar 12210 og 16481. Pósthólf
1411. — Verð i lausasölu 30,00 kr. Askrift kostar 90,00 á mánuði,
á ári 1080,00 kr. Setning og prentun kápu: Félagsprentsmiðjan h.í.
Prentun meginmáls: Prentsmiðja Þjóðviljans. Myndamót: Mynda-
mót h.f.
Launastríðið
SIGURÐUR GUÐNASON kom á sauðskinnsskóm austan yfir
heiði til að stjórna hinni eiginlegu verkalýðsbaráttu. Hvít-
flibbamenn lögðu honum lið, þegar vel stóð í bólið þeirra í *
hinum pólitíska dansi. Smám saman tókst fyrir tvihliða áróð-
ur að tengja verkalýðshreyfinguna við kommúnisma. íhaldið
í landinu þurfti á þessum áróðri að halda til að herða fólk
sitt upp í heilögu stríði gegn ýmsum endurbótum og kommún-
istar neyttu þess byrjar, sem andstaðan við verkalýðshreyfing-
una veitti þeim, og gerðust eins konar sjálfskipaðir forsvars-
menn hennar. Þeim tókst að afla sér pólitísks brautargengis
klofvega á verkalýðshreyfingunni, og gerðu hana að póli-
tísku afli, sem kallar á hefndir, hvenær sem einhver kaup-
hækkun fæst, vegna þess að andstæðingar, sem í þessu til-
felli eru ekki vinnuveitendur, eins og þeir ættu að vera,
heldur aðrir stjórnmálaflokkar, líta á hverja kauphækkun
sem pólitiskan sigur kommúnista, sem beri að eyðileggja.
Þannig hafa kommúnistar, með freklegum afskiptum af verka-
lýðshreyfingunni verið henni til vandræða, lifað á henni eins
og sníkjudýr og komið í veg fyrir að hún yrði sjálfstæður
aðili er leitaði trausts hjá eðlilegum samherjum og viðsemj-
endum sínum. Þar sem eiginleg verkalýðsbarátta hefur farið
fram, hefur hún verið háð af. einstökum forustumönnum ein-
stakra félaga, sem hafa haft hagsmuni félaga sinna eina í
huga. Það er þessum mönnum að þakka að verkalýðshreyfing-
in hefur alltaf náð sínum hlut, þótt þeir hafi ekki ráðið við
hin pólitisku hjaðningavíg, sem verkalýðshreyfingin hefur
verið -leidd til að gerast aðili að, af mönnum sem hafa Hfsaf-
komu fólks að pólitísku reikningsdæmi.
Allir vinstri sinnaðir
ISLAND er velferðarriki, og það hefur orðið það vegna þess,
að hér er enginn íhaldsflokkur til. Sjálfstæðisflokkurinn
stendur að og styður ýmis velferðarfyrirbæri, sem kennd eru
við sósíalisma. Þessi almennu viðhorf hafa orðið til að létta
verkalýðshreyfingunni baráttuna þrátt fyrir allt orðaskakið,
og þrátt fyrir nokkur verkföll, sem aldrei hafa orðið eins
alvarleg og hjá milljónaþjóðum, þar sem arðskiptingin er
meiri og fólk skiptist í stéttir með greinilegum mörkum.
Fróðlegt efni
til lestrar
Herra ritstjóri!
Ég er einn þeirra lesenda
Fálkans sem óska eftir fróð-
legu efni til lestrar. Fálkinn
hefur bætt úr þessu nokkuð að
undanförnu, en annars er ekki
mikið um slíkt efni í íslenzk-
um blöðum. Það er eins og
blaðamenn vantreysti lesendum
Ekki alla langar til að vita
hvað er efst á baugi í skemmt-
unum og tízku. Fólk sem hugs-
ar um vísindi á sinn 'alþýðlega
og vafalaust einfeldnislega hátt
langar lika til að fá eitthvað
við sitt hæfi. Það er fróðlegt
að heyra eitthvað um nýjustu
pppgötvanir náttúruvísindanna,
og eitthvað um almenn máj,
a. m. k. við og við. Ég held að
blaðamenn athugi ekki alltaf
að þjóðin skiptist ekki annars
vegar í hálærða fræðimenn og
svo hugsunarlausan lýð hins
vegar. Þarna á milli er fjöl-
mennur hópur. I vetur kom
t. d. grein um framtíð manns-
ins í Fálkanum. Væri hægt að
fá meira af slíku efni?
H. G. .
Svar;
Sennilega hefur þetta bréf
veriö skrifaö áöur en Hjörtur
Halldórsson menntaskólakenn-
ari lióf aö skrifa dálka sína í
Fálkann um „Furöur himins
og jaröar". Sá dálkur er ein-
mitt fyrir þann áhugahóp sem
H. G. talar um. Þaö er satt aö
FALKINN