Fálkinn - 13.06.1966, Side 8
Margrét prinsessa og Snowdon lá
ur gengu í salinn ...
ÖSKUBUSKA í ÓMEGIN
Thomas Jackson Cole er sendisveinn í
New York og nú á dögunum, þegar
Margrét Bretaprinsessa var þar á ferS,
lenti hann í eins konar öskuhuskuævin-
týri, þó úrslitin yrðu ekki beinlínis í
samræmi þar við. Honum barst í hend-
ur boðskort á hátíðlegan dansleik, sem
halda átti prinsessunni til heiðurs. Að
vísu var hér um mistök að ræða, því
boðskortið var stílað á einhverja frú
Stritch, en með því að Tommy hafði
lengi verið einlægur aðdáandi prinsess-
unnar ákvað hann að nota það sjálfur.
Hann ætlaði að fjarlægja nafn frúarinn-
ar af kortinu og setja sitt í staðinn, en
þegar hann var í þann veginn að hefj-
ast handa fékk hann bakþanka og hans
betri maðúr fór með sigur af hólmi-
Hann gekk'á fund frúarinnar og létti á
hjarta sínu um leið og . hann skilaði
kortinu. Hann trúði henni m. a. fyrir
því að hánn hefði verið þúinn að galla
sig upp fyrir samkvæmið og það hefði
ekki kostað svo lítinn skilding fyrir
hann fátækan búðarsendil. Frúin sagði
prinsessunni söguna og hún ákvað að
senda Tommy alvöruboðskort. Nú hefði
maður haldið að allt gengi að óskum
þar eftir. En endir sögunnar er dálítið
grátbroslegur. Tommy fór í.sitt fínasta
púss og mætti á staðnum með fína fólk-
Thomas Cole sendisveinn leið í
ómegin.
inu. Svo kom að því að prinsessan
og maður hennar, Snowdon lávarðúr,
gengu í salinn og tóku til við að heilsa
upp á gestina. Þegar kom að Tommy,
tók Margrét í höndina á honum og á-
varpaði hann kumpánlega, kallaði hann
meira að segja Tommy. Þá leið yfir
söguhetjuna okkar og það varð að bera
hann út í bíl. Þegar hann raknaði úr
rotinu, gekk hann um eins og í leiðslu
og endurtók í sífellu: „Hún kallaði mig
Tonr.my ...“
DATT
15
METRA
Fæstir gætu sagt frá
hvernig þeim hafi liðið
í fimmtán metra falli
út um glugga, ég tala
nú ekki um, ef þeir
hefðu komið niður á
höfuðið. En strákurinn
á myndinni, sem er
svissneskur og aðeins
hálfs annars árs gæti
sem hægast sagt mönn-
um ýmislegt um það,
ef hann væri dálítið
eldri. Hann datt sem sé
út um gluggann, sem
merktur er á mynd-
inni og kom niður á
höfuðið í húsagarðin-
um. Hann reis strax
upp á hnén eftir fallið
og háöskraði, þegar
móðir hans kom aðvíf-
andi. Hann var fluttur
á sjúkrahús og lækn-
unum til hinnar mestu
furðu kom í ljós að
hann hafði ekki feng-
ið á sig skrámu, eða
beðið á nokkurn hátt
tjón af fallinu.
*
8 FÁLKINN