Fálkinn - 13.06.1966, Blaðsíða 10
Þau eru systkin — en
þau elskast eins og
maður og kona. Þau
eiga saman barn. Sak-
laus urðu þau sek. Nú
geta þau aðeins hitzt
með leynd. Lögin segja:
Enginn veit, hvort Per Krister Hög-
ström hittir systur sína enn með leynd.
En í kaupstaðnum Gávle í Sviþjóð vita
allir að Ulla-Britt og Per Krister vona
að eftir tvö ár geti hann fengið her-
bergi í íbúð Ullu-Britt: Þá getum við
búið saman ásamt syni okkar — eins
og fjölskylda.
Eins og fjölskylda. En þau verða
aldrei fjölskylda. Því að Per Krister og
Ulla-Britt eiga sameiginlega foreldra —•
þau eru systkin.
.,Ég sver, að ég vissi það ekki. En
nú er ekkert hægt að gera. Ég elska
Ullu-Britt, og hún elskar mig.“
Saga þessara systkina er einkennileg.
í Svíþjóð eru hundruð bæja og þorpa.
Per Krister átti heima í Stokkhólmi og
stundaði atvinnu sína þar. Einn góðan
veðurdag — árið 1963 — langaði hann
að skipta um starf. í dagblöðunum sá
hann auglýsingu frá efnaverksmiðju í
Gávle, sem er í um það bil 200 kíló-
metra fjarlægð frá Stokkhólmi. Per
Krister sótti um stöðuna, sem auglýst
var, og fékk hana. Per Krister fluttist
til Gávle.
í Gávle eru um 80 þúsund íbúar, þar
af um helmingur kvenfólk. Nokkrum
vikum eftir komu sína var Per Krister
á göngu um hinn litla bæ og kom þá
auga á stúlku, sem honum leizt vel á.
Hann mælti til hennar nokkrum orðum
— rétt eins og ungir menn gera um
víða veröld. Og Ullu-Britt leizt einnig
vel á Per Krister. Að vísu bjó hún með
öðrum manni, en sagði skilið við hann
og tók saman við Per Kristér. Ári síðar
lýsti hún því yfir, að hún væri með
barni. Þau ákváðu að giftast.
En fyrst varð Ulla-Britt að láta skrá
sig sem ógifta móður, og hún tilkynnti,
að faðir barnsins héti Per Krister Hög-
ström.
Enginn gaf því gaum, þótt þau bæru
sama eftirnafn. Högström er ámóta al-
gengt eftirnafn og Jónsson á íslandi.
í FANGELSI.
Þau hlökkuðu til að eignast barn sitt
og spöruðu ailt, sem þau framast gátu,
til þess að geta gifzt sem allra fyrst.
10
FALKINN