Fálkinn - 13.06.1966, Qupperneq 12
Þessi mynd var tekin árið 1963. Hún er af UIIu-
Britt og Per og þá vissu þau ekki að þau voru
systkln.
ekkert, þegar hún frétti, að UIIa-Britt systir
hennár 'byggi með manni, sem héti Per Krister
Högström. Hafði móðir hennar ekki fullyrt, að
bróðir þeirra héti Ingimar?
En Per Krister sat í varðhaldi fyrir að hafa
elskað systur sína. Hann fann enga sekt hjá
sér. Hann viðurkenndi fúslega, að hann elskaði
UJiu-Britt. En hann sagðist ekki hafa haft hug-
mynd um, að hún væri systir sín.
Hinn 9. marz 1965 var kveðinn upp dómur
í Gávle með mestu leynd. Daginn eftir var Per
Krister frjáls maður — og harmþrunginn mað-
ur. Dómurinn hafði mælt svo fyrir að:
— Per Krister skyldi flytja burt úr hinni
sameiginlegu íbúð þeirra systkina.
— Per Krister skyldi flytjast á brott frá
Gávie.
— Per Krister skyldi ekki fá að hitta Ullu-
Britt að minnsta kosti um þriggja ára skeið.
Hann hlýddi. Hann sagði upp hinu góða
starfi sínu og réðst sem verkamaður i stáliðju-
veri ' um það bii 50 kílómetra fjarlægð frá
Gávle.
En énginn dómari getur dæmt ástina til dauða.
Þau sýstkinin skrifuðu Svíakonungi bréf, þar
sem þau fóru fram á, að þeim yrði veitt leyfi
til að giftast. Konungurinn svaraði bréfinu ekki
sjálfur, heldur fékk það í hendur dómsmála-
ráðherra Og dómsmálaráðuneytið staðfesti dóm-
inn i Gávle.
Ævintýrið um systkinin, sem þekktust ekki,
en hittust og elskuðust, er á enda Það. sem
á eftir fer, er blákaldur veruleiki.
Per Krister býr í einu Jeiguherbergi í Ára-
sunda Hann er einmana. Hann er drykkfelldur.
Hann hefur steypt sér í skuldir. Hið eina, sem
raunverulega heldur i honum lífinu, er vonin
um að fá aftur að búa með konunni sinni —
systur sinni — þegar hin þrjú ár eru liðin.
Ulla-Britt vinnur úti — hún á ekki völ á góðri
stöðu Orðrómurinn fylgir henni eftir, hvert
sem hún fer. Hún er líka dæmd manneskja.
Hún bíður einnig eftir því, að hin þrjú ár taki
enda Á nokkurra vikna fresti má Per Krister
hitta barn sitt — það hafa yfirvöldin náðar-
samlegast leyft honum. En móður barnsins má
hann ekki hitta — ekki svo vitað sé. En á ein-
hverium stað. sem engum er kunnugt um, í óra-
fjarlægð frá skæðum tungum rógberanna —
taka Per Krister UIla-Britt og sonur þeirra
sér bessaleyfi til að vera það sem þau eru í
raun og veru: fjölskylda .. tvær klukkustundir
í senn.
Ulla-Britt ásamt syni sínum og bróðursyni!
12 FÁLKINN