Fálkinn - 13.06.1966, Side 16
□
■■ ■ RANDO
„ÞAÐ er ekki til nema einn
Chaplin, og þa3 er ekki til nema
einn Brando. Já. og þegar út í það
er fariS er reyndar ekki heldur til
nema ein Loren. Nógu gaman aS
vita hvernig gengur þegar þau
þrjú leggjast á eitt".
Sofia Loren hefur á réttu að standa.
Það er beðið með mikilli eftirvæntingu að
sjá árangurinn. Og það er spennandi að
fylgjast með Chaplin meðan hann stjórnar
kvikmyndatökunni. Lítil] og tággrannur
með snjóhvítt úfið hár, klæddur tweed-
jakka og svörtum buxum. Hreyfingar hans
eru snöggar, og svipbrigðin leika stöðugt
um andlitið Hann er kröfuharður og læt-
ur taka senurnar upp aftur og aftur þang-
að til hann er ánægður Sextán sinnum
verður sonur hans, Sidney, að endurtaka
eitt atriðið, og enn er Chaplin þungbrýnn.
Loks rýkur hann upp og leikur sjálfur
senuna eins og hann vill hafa hana. Rödd-
in er þýð en ákveðin, og hvössu bláu
augun missa ekki af neinu Þegar hann
reiðist slær hann hægri hnefanum kreppt-
um i lófann á vinstri hendi og roðnár í
framan.
Nýjasta kvikmynd Chaplins heitir
GREIFÝNJÁN FRÁ HONGKONG og
er iekin ' Pinewood kvikmyndavér-
inu í Bretlandi. Aðalleikendurnir
eru hvorki mei.a né minna en
Sofia Loren og Marlon Brando, svo
a3 þess er beðið með töluverðri
eitirvœntingu að sj<S útkomuna nú
þegar þessi merkilega þrenning
starlar saman < fyrsta sinn. Hér
er Chaplin að leiðbeina Soiiu 1
gamansöma atriði.
I
16
FALKINN