Fálkinn - 13.06.1966, Blaðsíða 21
' DRAUGASKIP
í IMORÐURSJÓ
A
Draugaskipið
Ondo fast í
sandinum úti
fyrir
Cuxhaven.
Komið að
mannauðu
flakinu.
Við 52 gráðu
slagsíðu verð-
ur hvert skref
að hálfgerðu
glæfrafyrir-
tæki.
Ondo-ævintýr-
ið er á enda.
Eggers skip-
stjóri (til
hægri) er
kominn að
sækja frétta-
mennina, sem
gistu Ondo í
nokkra daga.
Eigandi flaks-
ins er bjart-
sýnn, en fram
að þessu hef-
ur ekkert
skip losnað
ár Fuglasandi,
sem hann
hefur á annað
horð klófest.
Skipsrotturnar hafa ekki enn yfirgef-
ið þetta 5000 tonna flutningaskip, sem
marar í sjávarborðinu eins og risasjó-
dýr, sem hefur orðið afvelta. Þann 6.
desember 1961 strandaði brezka flutn-
ingaskipið Ondo á hinum illræmda
„Fuglasandi" úti fyrir Cuxhaven.
„Eftir ár verður sandurinn búinn að
gleypa það,“ spáðu sérfræðingarnir þá.
En Ondo sökk ekki, það helzt enn ofan-
sjávar.
„Afturgöngur þriggja sjómanna gæta
skipsins. Það mun ekki grafast í sand-
inn,“ hvísla hinir hjátrúarfullu á strönd-
inni. Engbruch skipstjóri og tveir há-
setar drukknuðu, þegar þeir gerðu til-
raun til þess að koma Ondo á meira
dýpi.
„Skipsálfurinn er enn í dallinum. Það
heyrast í því stunur og andvörp um
nætur. Stundum heyrist m. a. s. einhver
hlæja.“ segja fiskimennirnir.
Tveir fréttamenn tóku sér ferð á
hendur út í þetta draugaskip og bjuggu
þar í nokkra daga. Þeir sáu ekki skips-
álfinn, en þeir sáu merki þess að sjó-
ræningjar höfðu verið þarna á ferðinni.
Á Ondo hefur verið rænt og ruplað.
í skjóli þoku og náttmyrkurs hafa sjó-
ræningjar farið um borð og látið greip-
ar sópa, stolið þar hreint öllu sem ekki
var rígnaglfast. Þetta brezka flutninga-
skip sem var að koma með kakófarm
frá Afríku er þó engan veginn forsjár-
laust rekald. Björgunarfyrirtæki Wulfs
keypti skipið fyrir 550.000,00 kr. af
tryggingarfélagi eigandans.
„Hann kemur honum aldrei á flot
aftur,“ segja sérfræðingarnir, en þeim
hefur þegar skjátlazt í einni spá sinni
varðandi Ondo, svo að — hver veit?
Eitt er víst. að ef björgunin tekst kem-
ur hún til með að borga sig og það
allvel. Komið á flot mundi Ondo vera
yfir 60 milljóna virði.
Fram að þessu hefur skipið þó legið
yfirgefið á sama staðnum í Norðursjó,
rétt fyrir norðan eyjuna Neuwerk.
Margir fiskimenn hrökkva í kút, þegar
þeir heyra skyndilega hvellan skræk
eða tramp margra fóta berast til sín
frá Ondo. Sjávarfallastraumar gera það
að verkum, að Ondo virðist hið lífleg-
asta. Vatnið, sem streymir inn eða foss-
ar út úr skipinu, þegar flæðir að því
eða fjarar frá því, veldur því að hurð-
ir ískra ámátlega á hjörum og tunnurn-
ar í lestinni byltast utan í veggina.
21
FALKINN