Fálkinn - 13.06.1966, Síða 23
FRAMHALDSSAGA_________... eftir ERIK HORI.ANDER
gagna sem af tilviljun höfðu
borizt honum í hendur og vakið
forvitni hans. Óvenjulega fram-
komu Hoffmanns við Grete
Rosenberg. Hina athyglisverðu
ljósmynd frá Garmisch, sem gat
bent til þess að Hoffmann væri
annar er hann þóttist vera.
Hingað til hafði þetta allt komið
honum fyrir sjónir sem einhvers
konar sérvizka sem uppræta ætti
til þess að fullnægja" almennum
sannleikskröfum. En nú skildi
hann allt i einu að hér gat verið
um gervalla tilveru Hofmanns
að tefla.
Honum rann kalt vatn milli
skinns og hörunds. Lífsferill
hans hafði aldrei gefið nein til-
efni til ofsókna né hefnda. Hann
mundi óljóst eftir blaðafyrirsögn-
um um stríðsglæparéttarhöldin
í Þýzkalandi. En hann haíði
aldrei kynnt sér efni greinanna
til hlítar. Innilokaður í heimi
barnshafandi kvenna og ný-
fæddra barna hafði honum fund-
izt að morð og fangelsisdómar
fyrir 25 árum væru sér óvið-
komandi.
Og nú átti hann í fórum sínum
nokkra bita úr myndagátu, sem
myndu valda algeru hruni ann-
ars manns, ef nákvæm rannsókn
færi fram á þeim.
Það var sízt að undra að Hoff-
mann væri ekki með sjálfum
sér. Og það var heldur ekki að
furða þótt hann reyndi að kaupa
sér öryggi. Hvert yrði nú næsta
skref hans?
Að baki sér heyrði hann Hoff-
mann segja: — Annar okkar
mun glata miklu í þessari ónauð-
synlegu viðureign, og ég er ekki
viss um að það verði ég.
Dyrunum var lokað hljóðlega,
og Hoffmann var farinn. Nú
fann Stenfeldt að svo gífurleg
hafði taugaþensla hans verið síð-
ustu tíu mínúturnar, að hann
verkjaði í kjálkavöðvana. I hend-
Inni hélt hann á aðventuljósinu,
sem einu sinni hafði verið kveikt
á. Án þess að vita af því hafði
hann brotið það í þrennt.
Hann settist þunglega á legu-
bekk Hoffmanns. Herbergið virt-
ist fjandsamlegt. Hinir stóru
skápar virtust bera utan á sér
varnaðarorð á læstum hurðun-
um: Hættusvæði.
Einhvers staðar í einum þess-
ara skápa voru sennilega rönt-
genmyndirnar af Grete.
Jæja, hvað um það ... Sten-
feldt gat séð um að aðrar rönt-
genmyndir yrðu teknar. Hann
gæti sjálfur hafið nýja rannsókn
á Grete eða trúað áreiðanlegum
lækni fyrir henni á öðru sjúkar-
húsi.
Og Hoffmann? Var bezt að
hætta við allt saman? Leita sér
atvinnu annars staðar.
Áframhaldandi samvinna var
óhugsanleg. Hoffmann mátti
gjarnan líta á það sem sinn sig-
ur að Stenfeldt drægi sig í hlé,
en burt yrði hann að komast.
Að vera læknir var eitt: þar
þótti ekki atvinnurógur sérlega
kaldrifjaður. En að láta kring-
umstæðurnar breyta sér í böð-
ul... Nei takk!
Stundarfjórðungi seinna var
hann kominn heim, tók tvær
svefntöflur og lét tjaldið falla
eftir erfiðan sólarhring á landa-
mærum ástar og haturs, lífs og
dauða.
5. KAFLI.
Grete Rosenberg stóð bak við
afgreiðsluborðið i ferðaskrifstof-
unni og seldi Egyptaland og
Kanaríeyjar sem jólagjafir. Fé-
lagar hennar voru nú orðnir
sammála um að Grete hefði loks-
ins leyft sér að verða ástfang-
in. Hún hafði ávallt borið slíkar
tilgátur til baka og haldið fast
í sína gömlu afstöðu, að hún
ætti marga vini en elskaði engan.
Nú var hin ákafa vörn hennar
um frelsi og sjálfstæði ekki
lengur alveg sönn. En ennþá var
hún sú eina sem vissi það.
En hvernig var það með Lars?
Hún vonaði að hann vissi það
ekki ennþá. Hún vildi ekki opin-
bera sig fyrr en hann hefði látið
í ljósi einhverjar heitari tilfinn-
ingar.
Hún hefði átt að vera full ást-
arkvíða leitandi eftir merkjum
frá honum, toga út úr honum
orð, nauða á honum til þess að
þvinga eitthvað fram sem líktist
vissu. En hún fann engan kvíða.
Hún hafði enga þörf fyrir að
gægjast fyrir horn og sjá hvað
morgundagurinn og framtiðin
bæru i skauti sínu. Hún var
hamingjusamari en nokkru sinni
áður á ævinni einungis vegna
þess að hún hafði uppgötvað dá-
samlegt skurðgoð, sem hún gat
dýrkað í hjarta sínu hömlulaust
og án þess jafnvel að þurfa ná-
lægðar hans við.
En — hvernig átti hún annars
að geta vitað hvort Lars væri
ástfanginn? Hvernig létu karl-
menn slíkt í ljósi? Þeir voru oft
svo stærilátir. Vildu ekki gefa
höggstað á sér í svo viðkvæm-
um málum nema vera nokkurn
veginn vissir um jákvæða svör-
un.
En eitthvað hafði komið fyrir
hann síðan um kvöldið í byrjun
desember er hann hafði borðað
kvöldverð hjá henni og verið
kailaður snögglega til sjúkra-
hússins. Hún hafði einskis spurt
og hann hafði ekkert sagt. En
það var komin yfir hann einhver
innri ró. Hann vakti hjá henni
nýja tilfinningu öryggis og hlýju
sem orðin var henni dýrmætari
en sjálft andrúmsloftið.
Og hann kyssti hana i hvert
skipti, sem þau hittust. Hann
bjó yfir einkennilegu samblandi
af blíðu og einlægni, sem hún
hefði aldrei trúað að væri til.
Hann var fullþroskaður maður
en virtist hafa unun af að leika
piltur-hittir-stúlku-leikinn í hinni
rómantislcari hlið tilhugalífsins.
Grete seldi enn tvær Kanarí-
eyjar og eitt Egyptaland fyrir
lokun. Síðan hraðaði hún sér
heim, lagði á sér hárið í skyndi
og sat í þurrkunni í stundar-
fjórðung. Augu hennar hvörfl-
uðu frá klukkunni til handtösk-
unnar. Klukkan hálfátta ætlaði
Lars að sækja hana til að fara
í leikhúsið. 1 handtöskunni
geymdi hún leyndarmálið mikla.
Hún hafði nú unnið fimm ár hjá
ferðaskrifstofunni og í fyrsla
sinn fengið fimm-ára jólagjöfina.
Hjarta hennar sló örar við til-
hugsunina eina um það sem i
vændum var. Myndi hann taka
boðinu? Bara að hún gæti nú
stappað í sig stálinu og fært
þetta i tal!
Hann sótti hana í sínum eigin
bil, en það var Volvo-bifreið
sem komin var til ára sinna.
Hún hnipraði sig saman í fram-
sætinu, að sitja þarna hjá hon-
um var eins og að vera inni-
lokaður i öryggi í notalegum
klefa, og það var tilfinning sem
gæddi augnablikið dýrmætum
ljóma...
Hún hugsaði til umslagsins í
handtöskunni, og hana hitaði í
kinnarnar af spenningi. Ég verð
útlits eins og feimin skólastelpa
þegar við komum inn í leikhús-
ið, hugsaði hún.
— Þú ert svo þögul, sagði
hann. Heldurðu einhverju leyndu
fyrir mér?
— Þú ert forvitinn, svaraði
hún.
Hann þagði nokkra stund en
síðan kom alvöruhreimur í rödd
hans: — Ég reyni að venja mig
af því að vera forvitinn. Ég
berst harðri baráttu við að til-
einka mér stóiskan hugsunar-
hátt. Það sem verður að vera...
Þau gátu rétt náð að losa sig
við yfirhafnirnar og kaupa sér
leikskrá áður en hringt var.
Leikhúsbjallan reif hana sem
snöggvast upp úr draumum
hennar. Hún hljómaði nákvæm-
lega eins og simahringingarn-
ar...
Ætti hún að segja honum frá
því? — að hún hefði tvívegis
- verið vakin upp um miðja nótt
af símahringingu? Að hún hefði
í fyrsta skiptið þotið fram úr
rúminu í þeirri trú að þetta væri
hann. Og þá aðeins heyrt þennan
andardrátt í heyrnartólinu.
Og síðan aftur það sama næstu
nótt. Hásan andardrátt en ekkert
orð. Það hafði verið í fyrrinótt.
Síðasta nóttin hafði verið við-
burðalaus.
Nei, hún ætlaði ekki að segja
honum það. Ekki segja neitt
sem gæti kastað skugga á þessa
bjöi'tu kvöldstund.
Meðan á sýningunni stóð gaf
hún honum við og við hornauga
í ljósinu frá leiksviðinu. Hár
hans virtist vera gróft og strítt
við eyrun og í hnakkanum. Hún
velti því fyrir sér hvort gneista
myndi af því ef hún stryki yfir
það með vísifingrinum. Væri
hann bara hálft eins rafmagn-
aður og henni fannst hún vera,
þá ætti það að verða sannkölluð
flugeldasýning!
Á eftir ætlaði hann að bjóða
henni í veitingahús, en hún varð
að framfylgja áætlun sinni.
Hún vildi því ekki borða úti.
Hún ætti dálítið af góðum osti
og humar og svolítið vín heima.
Vildi hann kannski... ?
— Gjarnan, sagði hann, og
hún andvarpaði af létti. Fyrsta
skrefið var stigið.
Þau borðuðu humarinn og
drukku vínið, og allt hefði átt
að vera fallið í Ijúfa löð. Þrátt
fyrir það virtist eins og ský væri
að draga fyrir sólu. Hún hugsaði
um umslagið í handtösku sinni
og fann greinilega að hún myndi
aldrei fá kjark til að minnast á
það.
Og Lars varð þegjandalegri
með hverri mínútu sem leið.
— Nú koma jólin bráðum,
sagði hann með erfiðismunum
eins og þetta hefði verið virki-
lega djúpsæ og vandmótuð hug?
un.
— Ja-á, samsinnti hún.
Síðan varð nokkur þögn. Her-
bergið virtist skreppa saman og
Allt í einu var sem einhver dulin spenna Iæsti sig um allt í móttökustolu yfirlæknisins. Læknirinn starði eins og
steingervingur á nokkra stafi sem voru tattóveraðir á handlegg hinnar meðvitundarlausu stúlku. Hann hafði
komið frá Þýzkalandi rétt eftir stríðið og hann þekkti sjúklinginn. Hún hafði verið í fangabúðunum .....
FÁLKINN
23
L