Fálkinn - 13.06.1966, Blaðsíða 24
BRENNIMERKT BRENNIMERKT BRENNIMERKT BRENNIMERKT
veggirnir færast nær hver öðr-
um. Síðan sagði hann: — Eins
og þú veizt á ég aldraða móður
I Gautaborg, sem tæki það mjög
nærri sér ef ég héldi ekki jólin
hjá henni. Ég vildi óska að ég
gæti tekið þig með.
— Við höfum rætt um þetta
áður, sagði hún. Uppeídissyst-
kini mín keppast við að sjá aum-
ur á mér. Og ég er búin að lofa
mér íyrir löngu. En ...
— En hvað?
Aítur þögn. Herbergið var orð-
ið að iitium kassa. Hún megn-
aði ekki að hreyfa sig.
— Það var ekkert.
— Grete... Veiztu hvað ég
vil? Ég hef verið að hugsa um
það vikum saman. Ég myndi
viija fara eitthvað burt með þér.
Hún iét aftur augun til þess
að halda tárunum í skefjum.
— Ég ... stamaði hún óskýrri
röddu, ég hef...
Svo teygði hún höndina eítir
handtöskunni, tók upp umslagið
og lagði það fyrir framan hann.
— Opnaðu það, sagði hún.
Þetta er jólagjöfin mín frá fyrir-
tækinu. En ég verð að hafa ein-
hvern til að njóta hennar með
mér. Vilt þú ... ?
Hann braut upp gjafakortið
og las það yfir. Svo horfði hann
á hana alvarlegur. Að því búnu
hellti hann meira víni í bæði
glösin.
6. KAFLI.
Þau fiugu til Zurich og fóru
síðan með áætlunarbíl til Gast-
hof Niederjoch nálægt sviss-
nesk-áusturísku landamærunum.
Kvöldið var þurrt og svalt og
smáar isnálar svifu í loftinu eins
og stjörnumynstur frá ólmum
leik vindanna um ósýnilegar
Alpahiiðarnar hátt uppi í kvöld-
húminu. Blys loguðu meðfram
brattri brautinni frá þjóðvegin-
um upp að tjargaðri timburbygg-
ingu hóteisins með gríðarmikið
týróiskt þakskegg. í forsalnum
skíðiogaði í risastórum, opnum
arni.
Þau áftu þrjár vikur fram-
undan, en eítir fyrstu vikuna
á hóteiinu ætlaði Lars Stenfeldt
til Miiano í fáeina daga á lækna-
mót. Hann hafði stungið upp á
því við Grete að hún kæmi með
honum, en hún vildi heldur verða
eftir á hótelinu í Alpadalnum,
en dveija i viku í súld og rign-
ingu sunnan Alpanna.
Án þess að þau hefðu fyrir-
fram rætt þau mál, hafði verið
gengið út frá þvi sem gefnu
að þau tækju hvort sitt herbergi
á hóteiinu. Gestgjafinn sem sjálf-
ur var lyklavörður, taiaði utan
að því við þau er þau skrifuðu
sig inn í gestabókina, að falleg-
asta tveggja manna herbergi
hóteisins, með stórum svölum
og útsýni yíir alian dalinn, væri
laust ef gestunum þóknaðist að
skipta.
Grete fannst hún verða fyrir
rafmagnshöggi. Nokkur orð frá
Lars gætu þýtt uppfyllingu allra
hennar leyndustu drauma — eða
vakið hana miskunnarlaust af
þeim. Það olli henni nokkrum
sársauka er henni varð ijóst að
hún hafði svikið bæði sjálfa sig
og Lars með því að trúa honum
ekki fyrir hinu erfiða líffræði-
lega vandamáii sínu.
En ef til vill...
Þessi óskýranlega, nærri of-
boðskennda skelfing, sem hún
hafði ávallt fundið gagnvart
karlmönnum, sem reyndu að
snerta við henni, hafði aldrei gert
vart við sig í sambandi við Lars.
Ef eitthvert réttlæti væri til í
heiminum, þá væri nú ef til vill
komið að henni að draga vinn-
ing.
Hún mætti feimnislega spurn-
araugnaráði hans. Ef þú værir
mér ekki svo óendanlega mikils
virði, hugsaði hún. Ef þú værir
einhver, sem ég gæti annað
hvort sleppt eða haldið. Þá
myndi ósigur ekki skipta svo
miklu máli. En ég get ekki misst
þig núna.
— Hvað finnst þér? sagði
hann á sænsku.
— Ég vil að þú ákveðir það,
hvíslaði hún að honum aftur.
— Við tökum bæði einkaher-
bergin, sem beðið var um, sagði
hann við gestgjafann. Ég fer til
Milano í nokkra daga í næstu
viku. Ef tveggja manna her-
bergið verður iaust þegar ég
kem aftur, þá skiptum við ef
til vill um.
Vikadrengur bar upp farang-
urinn fyrir þau. Þau fylgdu hon-
um eítir upp stigann og er þau
gengu inn eftir iöngum gangin-
um, tók hann hönd hennar í
sína. — Við getum ailtaf skipt
um herbergi ef við viljum, sagði
hann lágt.
Andartak fannst henni þetta
vera barnaskapur. Tvær full-
orðnar manneskjur veltu fyrir
sér spurningunni um eins- eða
tveggja manna herbergi eins og
líf lægi við.
— Við búum samt nálægt
hvort öðru, hvíslaði hún.
— Ég á eflaust eftir að viliast,
sagði hann og brosti.
Hann fékk aftur lítið bros frá
henni og spennunni var aflétt.
— Nú ætla ég að snyrta mig
dáiítið til eftir ferðina, hvisiaði
hún. Eigum við að segja að við
hittumst í matsainum eftir hálf-
tíma?
Hann kyssti hana á ennið og
fór inn í herbergi sitt.
Lars Stenfeidt fannst sem
hann hefðl aldrei séð Grete eins
undurfaiiega og þar sem hún
sat andspænis honum við kvöld-
verðarborðið. Andlit hennar um-
girt dökku hárinu hafði yfir sér
ró og heiðríkju, sem var aiveg
ný hjá henni.
Þau höfðu borð við gluggann
og útsýni yfir dalinn. Að kvöld-
iagi virtist hann eins og enda-
laus svört víðátta með dreifð-
um Ijósblettum frá afskekktum
Ijóskerum. Og eftir langan dag
í flugvélinni og áætlunarbílnum
var kyrrðin eins og biíðuhót.
Hann horfði í laumi á hendur
hennar og þráði að finna þær
láta blítt að sér.
Kaffið drukku þau við arin-
eldinn í samkomusainum. Ein-
hvers staðar í rökkrinu kringum
þau var slangur af öðrum gest-
um og allir létu sér annt um að
viðhalda hinni kyrriátu stemmn-
ingu.
— Þetta er eins og að vera
komin í annan heim, hvisiaði
hún.
Flöktandi eldbjarminn lék um
andlit hans og gerði það síbreyti-
legt — aðra stundina virtist
hann glaður og reifur, hina likt-
ist hann mest striðnislegum
skólastrák.
— Þú situr og horfir á mig,
sagði hann lágum rómi. Ég finn
það um allan likamann.
— Mér fellur vel að horfa á
þig-
Auk þess hugsaði hún með
sjálfri sér, fellur mér dásamlega
vel við þig á hvern þann hátt,
sem hægt er að falla við aðra
manneskju. Ég hafði aldrei látið
mig dreyma um mann sem iíkt-
ist þér. En svo varstu þarna allt
í einu. Þegar allt virtist sem von-
lausast og tómleikinn í brjóst-
inu var eins og botnlaus gröf
— þá kynntist ég þér.
Hann sneri höíðinu og ieit á
hana. — Ég vildi gefa mikið
fyrir að geta lesið hugsanir þín-
ar, hvislaði hann.
— Einhvern tíma seinna skal
ég lesa þær upphátt fyrir þig,
svaraði hún. En ekki núna.
— Eigum við að fara í kvöld-
göngu?
— Gjarnan.
Þau gengu eftir ójöfnum veg-
inum niður í bæinn og leiddust.
Svo skömmu eftir áramótin voru
ferðamenn ekki enn íarnir að
flykkjast í dalinn og bæjarbúar
héldu sig innan dyra. Það eina
sem þau mættu var snjóplógur
sem ruddi þjóðveginn. En strax
og hann var farinn fram hjá,
klufu tveir nýir ljósgeislar
myrkrið og nálguðust þau með
ofsahraða. Þau viku til hiiðar og
leituðu hæiis uppi á snjóskaíl-
inum en bíllinn hemlaði með
snöggum rykkjum og nam stað-
ar.
Maður á fimmtugsaldri spurði
til vegar að GasthausNiederjoch.
Þau bentu. honum á hvar hann
ætti að Víkja til hægri tií þess
að komast upp að hótelinu. —
Þið búið ef til vill sjálf á Gast-
haus Niederjoch? spurði hanti.
Er það gott hótel? Kyrrt og ró-
legt?
Lars Stenfeldt skýrði honum
frá að þau hefðu aðeins komið
fyrir örfáum klukkustundum og
vissu ekki mikið um hótelið.
Reynsla þeirra hingað til myndi
þó iofa góðu fyrir þann sem
leitaði kyrrðar og hvíldar.
— Er það rangt til getið hjá
mér, að þið séuð Svíar? héit
ókunni maðurinn áfram. Ég héf
komið til lands ykkar oft og
mörgum sinnum. Þið viljið e'f
til vill aka með mér aftur til
gistihússins?
Grete kreisti hönd Steníeldts,
og hann afþakkaði boðið. Að-
komumaðurinn lýsti vingjarri-
iega yfir óánægju sinni með að
þau skyidu ætla að þráast við
og fara fótgangandi upp hina
löngu brekku að hótelinu. Síðan
bauð hann kurteislega góða nótt.
Og bíllinn þaut af stað á fleygi
ferð og með drunum miklum.
Þau sáu framljós hans sópa veg-
inn upp að gistihúsinu og nema
staðar við aðalinnganginn.
Lars og Grete fóru alla leið
að þorpskirkjunni áður en þau
sneru aftur heim á leið. Hjartan-
ieg ágengni aðkomumannsins
hafði vakið einhvern óhug hjá
þeim. Hún var eins og aðvörun
um að jafnvel kyrrlátustu og
afskekktustu staðir væru ekki
óhultir fyrir friðarspillum.
— Hann verður varia nemá
nóttina, sagði Lars Stenfeldt. Og
við þurfum allavega ekki að
skipta okkur af honum.
Hann hefði getað sagt meira,
en hann vildi ekki valda Grete
áhyggjum. Ókunnugur maðuf,
sem nemur staðar og spyr til
vegar er ekkert óvenjulegt. En
ókunnugur maður, sem í sömu
andrá fastákveður þjóðerni fólks
sem er honum algerlega fram-
andi og útmálar þar næst fyri'r
því hve erfið brekkan sé upþ
að gistihúsinu sem verið er að
vísa honum á —- þarna var eitt-
hvað sem ekki kom alveg heim.
Þegar Lars Stenfeldt og Grete
komu aftur til hótelsins hálftíma
síðar hafði sportbíl ókunna
mannsins verið iagt undir snjó-
þakinu, en það varð ekki skilið
á annan veg, en að hann ætiaði
sér að gista. Hefði hann aðeins
ætiað að vera yfir nóttina myndi
hann sennilega hafa tekið boði
gestgjafans um að geyma bílinn
í upphituðum bilskúrnum.
Bíllinn hafði franskar númera-
plötur og var skráður í Cannes.
En hann var með stálnegldá
hjólbarða og var greinilega út-
Framh. á bis. 40.
24 FÁLKINN