Fálkinn - 13.06.1966, Qupperneq 39
FEGURÐ - LlFSCiLEDI - HAMINGJA
ERU OSKIR ALLRA STULKNA —
OG FAGURT OTLIT STYÐUR AÐ
UPPFYLLINGU ÞEIRRA.
snyrtivörurnar ásamt góðri umhyggju,
er öruggasta hjálpin til aukins kvenlegs
þokka.
V A L H tÍLLf Lauffavegi 25. sími 22 138.
ari af sterkum litum, þurfti
þessi drengur ekki á örvandi
rauðum lit að halda — dauiari
litur hentaði honum betur.
(Hafið þið tekið eftir þvi. að
þið akið hraðar i bíi sem er
rauður að innan en ef hann
er blár? Og að ykkur finnst
þið vera létt eins og laufblað
í hvítum eða rjómagulum bíl —
og kannski er ykkur hálfkalt
um leið — en það er þunglama-
legra að aka svörtum bíl. Það
er enn sálfræðin sem kemur
til greina. Fólk varar sig líka
fremur á rauðum bílum, af því
að rautt merkir hættu. Maður
getur gengið enn lengra í þessu
og sagt, að þegar bíll sem er
rauður bæði að utan og innan
lendi í árekstri sé það sök bíb1
stjórans i honum en ekki hin-
um bílnum.)
En nú skulum við snúa okk-
ur aftur að setustofunni. Það
má aldrei vera of mikið af
neinu ef áhrifin eiga ekki að
minnka. Eitt málverk á vegg
vekur mikla athygli, tvö nokk-
uð mikla, en röð af myndum
verkar aðeins eins og litarönd
sem skiptir veggnum í tvennt,
ekki eins og listaverk. Ef þið
viljið láta málverkin ykkar
njóta sín þurfið þið að haga
því þannig til, að allt annað í
stofunni verki sem bakgrunn-
ur fyrir þau. Sama er að segja
um höggmyndir — ef þær eru
of margar saman missa þær
fremur marks en ein sér. Það
er betra að hafa fáa hluti í
einu og skipta um á nokkurra
mánaða fresti en að hlaða öllu
sem þið eigið á borðið til sýnis.
(Líka fljótlegra að þurrka af
því þannig.)
Það hefur verið siður að
hafa aðeins eina viðartegund
í hverju herbergi, en það getur
verið mjög skemmtilegt að sjá
viðarlitum fallega blandað
saman og minnka þá aðra liti
í stofunni.
Ef teppið er einlitt getið þið
haft mynstruð gluggatjöld og
húsgagnaáklæði — og öfugt.
Ef gluggatjöld og teppi eru með
stórgerðu mynstri verkar stof-
an ofhlaðin áður en húsgögn,
lampar, myndir og fólk bætist
við. Ef gluggatjöld og teppi
eru einlit hafa skrautmunirnir
miklu meiri áhrif.
Ef þið hafið stóia og sófa í
stofunni með háum fótum og
borðin með mjóum, háum fót-
um dveljast gestir ykkar ekki
lengi hjá ykkur (og það viljið
þið kannski helzt). Ef þið haf-
ið trausta og þægilega stóla og
FALKINN
39