Fálkinn - 13.06.1966, Blaðsíða 49
reynp að draga hann lengra upp
á sylluna, úr allri hættu.
Hún mjakaði sér áíram þuml-
ung fyrir þumlung. Þegar hún
var komin gegnum þrengslin, lét
hún failast á kné. Prochega lá
um það bil tvo metra fyrir
framan hana.
Skíðablússan hans og treyjan
sem hann var í undir henni, voru
rifnar í sundur á ská yfir brjóst-
ið upp að hálsinum. Hún sá
skina í blóðidrifna skyrtuna og
nakta húð. Hún skreið í áttina
til hans. Hann kveinkaði sér
þegar hún velti honum um hrygg
svo að hann lægi nær bjarg-
veggnum. Annað skiði hans var
brotið rétt við bindinginn. Hún
leysti af honum stúfinn, sem
eftir var og sömuleiðis hitt skíð-
ið og renndi stafaólunum fram
af úlniiðum hans. Er hún hafði
lokið við þetta allt, opnaði hann
ailt í einu augun og virtist vera
með fuilri meðvitund.
Hann vóg sig upp á höndunum,
þar til hann sat uppréttur með
bakið upp við klettavegginn.
Síðan gerði hann tilraun með
að vinda upp á líkamann og
gretti sig af sársauka.
— Djöfullinn sjálfur! sagði
hann. Hægri fóturinn hlýðir
ekki. Hafið þér séð þetta —
hann myndar horn milli mjaðm-
ar og hnés. Lærleggurinn er
brotinn.
— Finnið þér mjög mikið til?
spurði Grete með samúð.
— Finn ég til! hrópaði hann
gremjuiega. Kæra ungfrú Rosen-
SPAIR
i stjörnurnar
Kæri Astró!
Ég er ein af þeim mörgu, sem langar til að vita eitthvað
um framtíðina og þá helzt um ástamálin, hvort ég giftist og
hvort það verður seint eða snemma. Hvort ég eigi eftir að
eignast mörg börn og hvort ég eigi eftir að lenda í mörgum
ástarævintýrum. Ég er 16 ára og hef bara verið með einum
strák og ekki mikið. Ég er mjög hlédræg og á erfitt með að
umgangast fólk. Ég á tvær agalega góðar vinkonur. sem alltaf
eru að reyna að fá mig með sér á skemmtanir, en ég fer
helzt aldrei. Segðu mér, hvort þetta breytist ekki til batnað-
ar, því mig langar með þeim en kem mér ekki að því.
Vonast eftir svari fljótt.
Júlla Snúlla.
Svar til Júllu Snúllu:
Það er mjög algengt að þeir,
sfem eru fæddir í þínu sólmerki,
séu framan af ævi, og þá sér-
staklega á unglingsárunum,
féimnir og hlédrægir, en oftast
nær breytist þetta mjög, þegar
á ævina líður. Svo verður einn-
ig með þig. Það er alveg
ástæðulaust fyrir þig að draga
þig algjörlega í hlé hvað
skemmtanir snertir, en einu
ætla ég sérstaklega að vara
þig við og það er að snerta
áfenga drykki, því að þér eru
allir vegir færir á meðan þú
gerir það ekki. Þú hefur frem-
ur: viðkvæmt taugakerfi og
þolir ekki mikla spennu. Nú
veit ég ekki, hversu nákvæman
fæðingartíma þú hefur gefið
mér upp, en þetta stjörnukort
béndir til að, þú giftist frekar
seint, en manni í góðri stöðu
líklega töluvert eldri en þú
ert, en líkur eru á, að hjóna-
bandið verði gott. Merki það,
Donni gefur vinsæiustu plötuna frá
Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur
Galdurinn er sá að finna plötuna, sem er falin einþvers
staðar á síðum Fálkans. — Að verðlaunum fær sá fundvísi
nýja plötu, sem liann velur sér eftir listanum hér að neðan
og platan er auðvitað frá Hljóðfæravcrzlun Sigríðar Hclga-
dóttur í Vesturveri. — Dregið verður úr réttum lausnum.
Vinsælar plötur í dag:
1. Kristina fran Vilhelmina — Sven Ingvars
2. Where Am I Going? — Petulla CJark
3. 19th Nerv'ous Brakedown — Rolling Stones
4. I Don’t Wanna Say Good Night — Gary Lewis
5. Nessuno mi puö giudicare — Gene Pitney
Platan er á blaðsíðu
Nafn:................
Heimili: ...............................
Ég vel mér nr............. Til vara nr.
Verðlaun úr 17. tölublaði:
Þuríður Þorsteinsdóttir, Kjartansgötu 8, Reykjavík.
VINNINGS MA VITJA A SKRIFSTOFU FÁLKANS.
sem ræður fimmta húsi, bendir
ekki til margra barna, en það
fer einnig töluvert eftir þvi,
hvernig fimmta hús makans
verður. Sólmerki þitt gerir
þig metnaðargjarna og áhuga-
sama um að komast áfram i
lífinu. Þar af leiðandi verður
mikilvægt fyrir þig að kvæn-
ast manni í góðri stöðu. Þú
getur verið anzi skapmikil en
um leið tilfinninganæm, og ég
held að þú sért töluvert list-
ræn í þér. Þú ættir að reyna
að kynna þér bæði leiklist og
tónlist, ekki endilega til að
gera það að lífsstarfi þínu held-
ur vegna þess að það yrði þér
til sérstakrar ánægju. Þú þarft
að hafa eitthvað fyrir stafni,
sem veitir þér ánægju. Þú hef-
ur einnig ríkt ímyndunarafl,
en láttu það samt ekki hafa
of mikil áhrif á ástamálin,
reyndu heldur að notfæra þér
það. Árin 1967 og 1968 eru
sérstaklega hagstæð fyrir þig.
berg, líkamlegur sársauki heíur
aldrei skipt neinu máli fyrir mig.
En það er hábölvanlegt til þess
að vita, að maður geti ekki
hreyft sig eftir eigin geðþótta.
Þér voruð heppin að komast lífs
af.
Hún heyrði orð hans eins og
óm úr fjarska. Gegnum sundur-
tætt föt hans sá hún grilla í húð-
ina undir handarkrika hans. Og
þar var merkið. Heiðursmerki
mannsins með ljáinn. Það leit
út eins og tvær svartar elding-
ar.
Prochega leit á hana og sá
hvert augnaráð hennar beindist.
Hann vafði rólegur rifnum föt-
unum þéttar að sér.
— Líður yður eitthvað iila,
ungfrú Rosenberg?
Málrómurinn var fuliur hroka
og það var erfitt að ímynda sér
að hann kæmi frá manni, sem
um björgun var í einu og öllu
háður velvilja hennar.
Grete fann hvílíkt rót var
komið á hugsanir hennar og
ákvað að láta hann ekki draga
sig inn í samtal. Hún sá enn
svarta SS-merkið fyrir hugskots-
sjónum sínum.
Merki hans og hennar. Böðuls-
ins og fórnardýrsins. Tölurnar,
sem hún var brennimerkt með
höfðu fölnað ofurlítið með árun
um, liturinn var ekki eins skær-
blár og þegar hún var barn.
En þær voru þar og myndu
alltaf verða þar.
Merki hans hafði haldið hin-
um skýra svarta lit. Hann hafði
ekki verið dreginn með valdi inn
í óþrifalegan bragga og fundið
stungur húðflúrsnálarinnar eins
og nístandi brennimark á sálina.
Nei, hann hafði látið merkja sig
af fúsum og frjálsum vilja, að
undangenginni hátíðlegri athöfn
og eiðstöfum og sennilega hafði
þvi verið fylgt eftir með mikl-
um gleðskap i hópi þeirra
manna, sem hann kallaði félaga
sína og vopnabræður. Þeir höfðu
sótzt eftir að fá sín merki, lagt
sig í lima til að verða þessa
heiðurs aðnjótandi. Þeir höfðu
afsalað sér samvizku og ábyrgð-
artilfinningu og staðfest með
eiði skilyrðislausa hlýðni sína við
menn, sem höfðu gert fjölda-
morð að sínum trúarbrögðum.
Já. Grete Rosenberg vissi hvaða
skyldur SS-merkið lagði mönrs
um á herðar.
Samt átti hún í huga sínum
skýra mynd af aðeins einum SS-
manni. Hann hafði staðið á
brautarpallinum hinn drunga-
lega morgun þegar flutningalest-
in nam loksins staðar, hurðinni
var skotið frá og hörkuiegar
raddir skipuðu þeim sem inni
voru að flýta sér út
Hann hafði staðið í svarta ein-
kennisbúningnum með silfur-
röndunum og hauskúpumerkinu,
með krosslagða arma og hnrft
FALKINN