Fálkinn - 13.06.1966, Side 50
PANTIÐ STIMPLANA HJÁ
FÉLAGSPRENTSMIÐJUNNIHF
SPÍTALASTÍG10 v.ODINSTORG
SlMl 11640
... ☆
Hreinsar
loftið
á
svipsMu
Heildsölubirgðir
Kristján Ó. Skagf jörft
Sími 24120
á tvo menn í hvítum sloppum
skipa gráleitum mannfjðldan
um í tvær raðir: „Rechts —
links — links — rechts."
Hann hafði ekki sagt neitt,
ekki hreyft legg eða lið. En þá
um morguninn hafði þeim virzt
eins og hann vekti yfir þeim öll-
um. Og þegar fangarnir gengu
fram hjá honum í röðum með
pinkla sína, litu þeir undan. En
sá svartklæddi brosti dauflega
þar sem hann stóð teinréftur og
kyi;r. . - •
Rödd Prochega ruddi sér. braut
gegnum vegg minninganna og
hún vaknaði aftur til nútiðarinn-
ar. — Tíminn líður, ungfrú
Rosenberg. Þér ættuð að hugsa
um að komast aftur til hótels-
ins.
Hún leit á hann rannsakandi.
Sundurrifin blússan hékk niður
á ská og í hægri vasanum virt-
ist hann geyma eitthvað, sem
var mjög þungt. Útlínurnar
minntu á marghieypu.
Grete gekk enn eitt skref aftur
á bak. Hún var komin úr seil-
ingarlengd frá honum en að baki
sér hafði hún einstigið og til
þess að. komast yfir það, yrði
hún að standa upp og snúa sér
frá honum.
— Það er kalt í þessari bölv-
uðu gröf, sagði hann stuttara-
lega. Það var dulbúin skipun til
hennar um að flýta sér. Hún
fann að ótti hennar dvinaði ofur-
lítið. Við hvað þurfti húrr eigin-
lega að vera hrædd? Hann hafði
enga ástæð.u til að gera henni
mein. Líf hans var undir þvi
komið að hún gæti sótt hjálp.
Átti hún að bjarga hon'úm?
Spurningin gerði skyndilega
vart við sig hjá henni,- Hann
var einn af þessúm böðlúm, sem
höfðu tekið foreldra hénnar af
lífi ásamt milljónum af öðru
saklausu fólki. Vildi hún virki-
legá lája bjarga honum?
Jú, áúðvitað mýndi hún sséícja
hjálþ. En hún vissi að hún gerði
það ekki vegna Prochegá. Hún
gerði" það til að friða samvizku
sína.
Hún stóð á fætur og hallaði
sér upp við bjargvegginn á
meðan hún horfði á hann. Til-
finningalaust augnaráð hans
virtist undirstrika helkuldann
sem lagði upp úr gljúfrinu.
Hægt og rólega ýtti hún upp
erminni á skíðablússunni sinni
og peysunni svo fangabúðamerk-
ið varð vel sjáanlegt. • Enginn
vöðvi bærðist i andliti hans.
— Nokkur orð áður en þér
yfirgefið mig, ungfrú Rosenberg,
sagði Prochega rólega. Ég virð-
ist ef til vill ósjálfbjarga hérna
sem ég sit. En ég fullvissa yður
um að ég hef verið í erfiðari
aðstöðu en þessari — og lifað
af. Ég hef annað skíðið enn,
og báða stafina. Ef nauðsyn ger-
ist, þá held ég að mér myndi
takast að skríða upp úr gljúfr-
inu sömu leið og þér komuð
niður. Og jafnvel þótt það yrði
nokkur seinlegt þá held ég að
mér yrði mögulegt að renna mér
niður f dalinn á einu skíði. Þér
hafið ekki hugmynd um, ungfrú
Rosenberg, hve ‘hlýðið verkfæri
mannslíkaminn er, ef hann er
aðeins knúinn áfram af nógu
sterkum vilja. Slíkan vilja hef
ég.
— Ég skal sjá um að þér verð-
ið sóttur, svaraði hún og varð
aftur róleg.
— Farið nú, sagði hann með
áherzlu. Ég er að byrja að finna
til-gremju: Þess vegna vil ég að
þér fárið. *> -r ' ' .■••-;«.•
' Hún : dró aftur niður blússu-
ermina íog huldi rrierkið. Svo
sneri hún baki við honum og
byrjaði að fikra sig upp úr
gljúfrinu aftur eftir einstiginu.
Þegar hún var komin upp, sá
hún hann ekki lengur. Hún festi
á sig skíðin og lagði af stað í
hina erfiðu göngu upp að hótel-
inu. Hún var í tvær klukkustund-
ir að komast til Gasthaus Nieder-
joch. Skjálfandi af þreytu sagði
hún gestgjafanum frá slysinu.
Tíu minútum síðar lagði björg-
unarsveit af stað neðan úr daln-
um.
Um kvöldið flutti Grete inn
í hjónaherbergið. Gestgjafinn
hafði látið setja blóm þangað
til að sýna velvild sína. Her-
bergið var ferskt og vistlegt
Fyrir utan stóra gluggann blastl
dalurinn við í kvöldljósadýrð
sinni sem var eins og neistaflug
i myrkrinu. Eftir aðeins örfáa
daga mundi áætlunarbíllinn
koma upp dalinn með farþega,
sem hún þráði framar öllu öðru.
Þá ætlaði hún að stánda niðri
á veginum og biða. Hann myndi
köma út. Það yrði byrjun á:ein-
hVerju nýju. Þau yrðu ekki leng-
ur þú og ég. Það myndi breyt-
ast í „við“.
Hringdu fljótt, hugsaði hún og
leit á svart símaáhaldið. Hringdu
og lofaðu mér að heyra rödd
þina.
Framh. í næsta blaði.
,! t
Fálkinn
a S
Við viljumvekja athygli á að nýir áskrií-
endur íá Fálkann með einstökum kosta-
kjörum: '
—- Nœstu G0 blöð fyrir aðeins 900,00
krónur eða hálfvirði miðað við lausa-
sölu. Þetta er verulega góð blaðakaup
— yfir 3000 blaðsíður af alhliða efni,
vönduðu og skemmtilegu.
Áskriftargjaldið jþarf ekki að greiðast í
einu lagi, heldur eins og yður verður
iþœgilegast.
KHVNIMAIUSIKHirr
Yínsamlcga scnditf mér nxstu C0 Jiluð I?Al.KAXS»
Nafu
Neimili i
Cl Askriflitrgjnldið kr. 9ÍKI.00 fylgir.
□ Fyrsln grciðsla, kr. 150.00, fylgir Iiér mcð,
□ Innlicimtið fyrstu fii'ciðslu, kr. 150.00, mcð pó.stkiofu,
□ Kftii'löðvaynar grciðast mcð Ia*. 150.00 i\ Ojn mótuitfa Jfrestf,
50 FÁLKINNÍ