Fálkinn - 13.06.1966, Síða 52
Vinsælar og ódýrar utanlandsferðir
Með fyrstu leig'uflug'iim okkar
á sumrinu getum við boðið
vinsælar utanlandsferðir með
íslenzkum fararstjórum í júlí-
mánuði með áður óþekktum
kostakjörum.
I mörg ár hefur ferðaskrif-
stofan SUNNA gengist fyrir
utanlandsferðum með íslenzk-
um fararstjórum. Hafa ferðir
þessar orðið vinsælli með
hverju ári, enda vel til þeirra
vandað. Á síðasta ári var svo
komið, að um 800 manns tóku
þátt i skipulögðum hópferð-
um á vegum SUNNU til út-
landa. Er það meiri farþega-
fjöldi í utanlandsferðum en
hjá öllum öðrum islenzkum
ferðaskrifstofum til samans
árið 1965. Þessar miklu vin-
sældir á SUNNA því fyrst og
fremst að þakka, að ferðir
skrifstofunnar hafa likað vel
og fólk, sem reynt hefur, get-
ur mælt með þeim við kunn-
ingja sína.
VÍNARBORG — BÚDAPEST —
JÚGÓSLAVÍA — SVISS
Brottför 26. júlí. 17 daga ferð. Verð kr. 18.700,00.
Þetta er nýstárleg ferð, sem ekki hefur verið á boðstólum
áður. Hún veitir fólki tækifæri til að kynnast náttúrufegurð
og skemmtanalífi í þeim löndum Mið-Evrópu, þar sem lands-
lagsfegurð er einna mest.
JÓNSMESSUFERÐ
TIL NORÐURLANDA OG SKOTLANDS
Brottför 21. júní. 15 daga ferð. Verð kr. 14.800,00.
Þessi Norðurlanda- og Skotlandsferð er með dálítið öðru
sniði en aðrar hliðstæðar ferðir skrifstofunnar. Flogið fyrst
til Bergen og siðan farið um fjallahéruð og firði til Otló og
verið við bálin frægu í Harðangursfirði á Jónsmessunni. Síðan
er dvalið í Osló, en lengst í Kaupmannahöfn, 6 daga.
PARÍS — RÍNARLÖND — SVISS
Brottför 19. ágúst. 17 daga ferð. Verð kr. 17.650,00.
Þessi vinsæla ferð hefur verið farin svo til óbreytt í sjö ár
og jafnan við miklar vinsældir. Flogið til Parísar með við-
dvöl þar, síðan flogið til Zúrich og ekið þaðan um fögur
fjallahéruð Alpanna til Luzern, þar sem dvalið er. Flogið til
Rínarlanda og dvalið í Rúdesheim um „Vinhátíðina".
LONDON — AMSTERDAM — KAUPMANNAHÖFN.
Brottfarardagar: 3. júlí, 17. júli, 31. júlí, 14. ágúst 4. sept-
ember. 12 dagar. Verð kr. 11.8000,00.
Þessar stuttu og ódýru ferðir gefa fólki tækifæri til að
kynnast þremur vinsælum stórborgum Evrópu, sem allar eru
þó mjög ólíkar. Milljónaborgin London, tilkomumikil og sögu-
fræg höfuðborg heimsveldis. Amsterdam, heillandi og fögur
með fljót sín og skurði, blómum skrýdd og létt í lund. Og þá
„Borgin við sundið", Kaupmannahöfn, þar sem Islendingar
una sér betur en víðast á erlendri grund.
EDINBORGARHÁTÍÐIN
Brottför 27. ágúst. 7 daga ferð. Verð kr. 7.210,00.
Þessi vinsæla ferð hefur verið farin á hverju ári i sex ár
og jafnan fullskipuð.
ÍTALÍA í SEPTEMBERSÓL
Brottför 1. september. 21 dagur. Verð kr. 21.300,00.
Flogið til Milano og ekið þaðan um fegurstu byggðir Italíu
með 3—4 daga viðdvöl í Feneyjum, Flórenz og Róm. Frá Róm
liggur leiðin suður um Napoli, Pompei til Sorrento hinnar
undurfögru borgar við Capriflóann. Þvi næst er siglt með einu
glæsilegasta hafskipi heims, risaskipinu Michelangelo, norður
með ströndum Italíu og Frakklands og gengið á land í Cannes
á frönsku Rivierunni og ekið þaðan í bíl til Nizza, þar sem
dvalið er síðustu daga ferðarinnar. Flogið heim um London.
ÍTALÍA OG SPÁNN
Brottför 23. september. 21 dagur. Verð kr. 24.860,00.
Þessi óvenjulega og glæsilega ferð var farin í fyrsta sinn
í fyrra, fullskipuð og komust færxú en vildu. Flogið til Feneyja
og Rómar. Frá Róm er ekið til Napoli og Sorrento. Siglt frá
Napoli með hinu glæsilega nýja hafskipi, Michelangelo, til
Gibraltar á syðsta odda Spánar. Þaðan ekið til Torremolinos,
þar sem dvalið er á baðströnd. Flogið heim með viðkomu i
Madrid og London.
ÆVINTÝRAFERÐIN TIL AUSTURLANDA
Brottför 7. október. 21 dagur. Verð frá 22.700,00.
Þeir mörgu, sem tekið hafa þátt í þessum vinsælu ferðum
SUNNU á ævintýraslóðir Austurlanda, eiga fæstir nógu sterk
orð til að lýsa þeim undrum og fui’ðum, sem fyrir augun ber.
Flogið er til London og þaðan til Aþenu, þar sem dvalið er
í þi’já daga. Flogið til Beirut. Ekið yfir Libanosfjöll til Baalbek
og Damaskus. Flogið til Kaíró. Siglt á Níl. Skoðaðar merkar
fornminjar hins gamla menningarlands. Flogið til Jerúsalem.
Skoðaðir sögustaðir Biblíunnar. Flogið til London með tveggja
daga viðdvöl á heimleið.
Sleppið ekki þessu einstæða tækifæri til að notfæra ykkur kostakjörin um ódýrustu utanlandsferðir sumarsins til vinsælustu
staðanna með íslenzkum fararstjórum. — Athug-ið: Plássið er takmarkað, og það komast aldrei allir, sem vilja í hinar vinsælu
SUNNU-ferðir. Á síðasta ári fengum við um 800 farþega, alla ánægða, lieim úr liópferðum okkar til útlanda.
FERÐASKRIFSTOFAN
BANKASTRÆTI7
SÍMAR 16400 og 12070