Vaka - 01.09.1929, Síða 60
186
KKISTINN E. ANDRÉSSON:
[vaka]
Hann krafðist þess, að landstjórinn yrði rekinn frá
völdum og þýzk félög í Suður-Tíról leyst upp. Öllum
ríkjum yrði að vera kunnugt, að ítalir sæti í Suður-
Tíról og hyrfi þaðan ekki framar. Upp frá þessu verður
sjaldan hlé á ofbeldisverkum fascista i Suður-Tíról.
Mussolini gaf þeim tóninn. „Öll ógæfa vor er að fullu
og öllu hans verk“, segir Reut-Nicolussi.
12. sept. 1922 gerðu fascistar bæjarstjórninni í Bozen
tvo kosti, annaðhvort að leggja niður störf eða ganga
að kröfum þeirra, er voru í tíu liðum. Kröfurnar voru
með þeim hætti, að bæjarstjórnin gat ekki gengið að
þeim og tóku fascistar þá öll ráð í sínar hendur, 27.
sept. Skömmu síðar fóru fascistar sigurför um Ítalíu
og héldu innreið sina í Róm. Mussolini hafði náð tak-
marki sínu.
Síðan fascistar komust til valda, hafa allar gjörðir
þeirra í Suður-Tíról beinzt í þá átt að afmá þar þýzkt
þjóðerni og tungu, gera Þjóðverja þar að ítölum eða
hrekja þá að öðrum kosti úr landi. En Þjóðverjar
hafa varizt með einurð og þrautseigju. Með árinu 1923
má segja, að sóknin hefjist fyrir alvöru, og hefir hún
síðan haldizt fram á þennan dag. Stjórnarferill fasc-
ista þessi ár er sannarlega óglæsilegur. Þeir hafa farið
þar öllu sínu fram, eftir því sem þeir hafa verið menn
til, og eftir sögnum Þjóðverja í Tíról hafa þeir látið
sér l'átt fyrir brjósti brenna. Þjóðverjar hafa verið
baldnir og sýnt stöðugan mótþróa, reynt eftir mætti
að verjast lögleysum þeim, sem hafðar liafa verið í
frammi. Hefir fascistum sárnað vörn Þjóðverja og hafa
stöðugt haldið refsivendinum á lofti yfir þeim. Nú er
svo komið, að Tírólbúar hafa mjög látið bugast og geta
litið viðnám veitt.
í júlí 1923 varð Giuseppe Guadagini landstjóri í Suð-
ur-TíróI. Fascistaráðið fékk honum stefnuskrá, er hann
kvað hafa fylgt með köhlu blóði. Boðskapur fascista
var á þessa lcið: Hreppstjórar skyldi vera ítalskir,