Fréttablaðið - 21.11.2009, Page 38

Fréttablaðið - 21.11.2009, Page 38
38 21. nóvember 2009 LAUGARDAGUR 06.09.2006 Fall er fararheill!!!! Vaknaði í morgun með þá snilldar- hugmynd að græja mér upp svona Sigurrósarhliðarkhakiálfalap- topptösku til að geta valsað um, innan sem utan dyra, með allt mitt drasl með mér án þess að þurfa að sleppa hækjunum mínum grísku! Ok, þá var best að fara síðustu ferðina niður á næstu hæð heima eftir gömlu aðferðinni, þ.e.a.s. með laptoppinn í annarri hendi og hækjuna í hinni. C.a. hálfa leið niður stigann klikkaði S.O.P eitthvað og þjálfun- arflugstjórinn fyrrverandi flaug niður restina af vegalengdinni, laptoppurinn small skemmtilega í flísunum, adsl-tengdur by the way, og lenti þessari flottu magalend- ingu hér í Áslandinu rétt áðan.. Langaði bara að deila þessu með ykkur. Held að kallinn sé alveg í heilu lagi, sýnir bara hvað hægt er að hafa gaman af lífinu í rólegheit- unum heimafyrir.. 08.10.2006 Kaffitársdagur1 Vitiði það góðir hálsar að á hverj- um laugardegi hittumst við fullt af fólki í lunch og kaffi á Kaffi- tári í Bankastrætinu og er þetta orðið hálfgert ritual sem er soldið skemmtilegt verð ég að segja...fullt af börnum og allt á hvolfi...soldil læti, en bara gaman að hittast og segja hvort af öðru. Svaf frekar asnalega í nótt og veit eiginlega ekki af hverju...bara er stundum svona og þá er maður hálf tussu- legur yfir daginn og bara allt í lagi með það! Dauðöfunda dóttur mína, ver- andi á skíðum í Austurríki þessa dagana og sáum við á webcam yfir jökulinn hjá henni að þar var heiðskírt og logn!! Svona á að hafa þetta. [...] That´s life, take it as it goes, það er best! Mamma og Gulli komin frá Paros og rosa gott að vita af þeim heim komnum! Ekki meira héðan, Ciao!!! 23.01.2007 The man with the buff- alo hump! Halló halló! Hér er ég að skrifa smá blogg í enda dags sem er búinn að vera hálf downlegur (Hálfdán). Það er leiðindapirring- ur í líkamanum og ég eyddi deg- inum meira og minna uppí rúmi, sem sagt one of these days! Byrj- aði reyndar á því að hitta Óskar lækni og ræddi við hann um ýmis- legt, þar á meðal að maður er kom- inn með soldið áberandi bjúg víðs- vegar um líkamann og þar á meðal aftan á herðunum..... Þetta fyrir- bæri á sér það læknisfræðilega nafn “Buffalo Hump” og er það mjög gaman að vera með svoleiðis á bakinu hmmmmm! [...] Jæja, ekki meira í bili og segjum þetta nóg í dag og sofið á vinstri hliðinni því þannig verður ein- hvern veginn meira úr svefnin- um...... Ciao!!! 24.06.2008 I´m on a roll, I´m on a roll this time....I feel my luck could change..... Jæja góða fólk! Nú er það nýj- asta í krabbameinsbransanum að samkvæmt nýjustu myndatökum kemur í ljós að æxlin, sem voru komin í lungun hafa hopað það mikið að lítið sem ekkert sést leng- ur.... Það sem var komið í hryggj- arliðinn er einnig búið að sýna breytingu til batnaðar! Restin af líkamanum er að sýna afleiðingar lyfjameðferðarinnar og er túlkun- in sú að lyfjakokteillinn hans Ósk- ars hafi virkað svona helv..vel. Ég hef farið þennan hring áður, þannig að ég veit hvað getur gerst seinna, en það er samt ástæða til að fagna þessum áfanga núna. Magnaður andskoti hvernig þetta getur farið stundum og ég bara skil þetta ekki alveg....helst er skýringin sennilega sú að ég fór að bera brúnkukrem á rassinn á mér (út af öðru) og það hefur að öllum líkindum hjálpað svona mikið til hmmmmm [...] 21.01.2009 Come as you are, as you were, as I want you to be..... Komiði sæl kæru mótmælendur! Vonandi eru allir búnir að þurrka piparúðann úr augunum og fjar- lægja eggin sem ekki voru notuð úr úlpuvösunum, jafnvel hægt að sjóða þau og nota í salat í hádeginu hmmmm..... Ég er löglega afsakaður, sýndi öryrkjaskírteinið mitt og var mér þá hleypt framhjá fjöldanum og komst þá beint á kaffihús, fékk mér brauð með skinku og osti og hélt áfram að hugsa um sjálfan mig... Þetta er nú samt þannig að ein- hverju verður maður að mótmæla og í mínu tilfelli, þá segi ég nei við núverandi heilbrigðiskerfi og þá spyrja sumir, hvað er maðurinn að segja? Jú, ég er búinn að vera soldið aktívur í þessum hjartans málum mínum og er nú að upp- skera eins og ég sáði. Fréttirnar komu inn eins og einhverjir muna og núna er kallinn að tala á ráð- stefnu um framtíðarsýn í íslenska heilbrigðiskerfinu. Góðir hlut- ir gerast hægt og er það alveg að sanna sig í þetta skiptið. Það er greinilega mikil undiralda í tengsl- um við bætta samvinnu ólíkra hópa innan heilbrigðisgeirans og mikið talað um að þessir aðilar vilji meiri samvinnu sem er mjög gott mál. Það kannski bjargar mér ekki eins og komið er en fyrir þá sem á eftir koma skiptir þetta gríð- arlega miklu máli. Andrea okkar kom heim frá Dal- vík í gær eftir að hafa verið þar í 4 daga og auðvitað rosa gaman að fá hana aftur heim á fjallið fagra. Hún er að standa sig alveg gríðar- lega vel og ef svona heldur áfram, þá held ég að við séum að sjá fram á flottan vetur hjá stelpunni. Ég er eins og venjulega að verða temmilega geðbilaður á þessum andsk. verkjum sem eru algjörlega óútreiknanlegir, koma stundum á kvöldin en einnig koma þeir bara alls ekki..þá er bara smá seiðingur og honum er hægt að venjast. Ég er kominn með kannabisplöntu út í glugga (hmmm), en sagt er að mar- ijuana sé verkjastillandi, ég þarf bara að finna út hvort betra sé að tyggja, sleikja eða reykja. Verð eiginlega að hætta núna, lögreglan er komin, hefur eitthvað út á gluggaútstillinguna mína að setja þannig að hérna endar þetta. Takið ykkur stöðu, teygið út báða handleggi, jafnið bilin og kyn- gið tannkreminu sem varð eftir... Ciao! Þrjú mögnuð ár í lífi fallins flugstjóra Atli Thoroddsen greindist 36 ára með krabbamein. Hann bloggaði um veikindi sín og daglegt líf meðan á krabbameinsmeðferð- um stóð. Þegar hann lést síðastliðið sumar var hann langt kominn með að ganga frá efninu í bókarform en aðstandendur og vin- ir luku verkinu. Fréttablaðið fékk að birta nokkur brot úr bókinni Dagbók rokkstjörnu – þrjú mögnuð ár í lífi fallins flugstjóra. ÁSTA OG ATLI „Ungur maður sem hét Atli varð hrifinn af ungri konu, sem hét Ásta, sem varð líka hrifin af honum fyrir mörgum árum. Þau urðu að Atla og Ástu. Og lífið hló. Lengi lengi.“ Frestur til innsendinga kvikmyndaverka til Edduverðlaunanna rennur út 1. desember 2009. Gjaldgeng eru kvikmyndaverk sem frumsýnd eru á tímabilinu 1. nóvember 2008 til 31. desember 2009. Verðlaunin verða afhent í janúar 2010. Verkunum skal skilað til Kvikmyndamiðstöðvar Íslands að Túngötu 14 í Reykjavík ásamt fylgiblaði og kvittun fyrir greiðslu innsendingargjalds. Hverju innsendu verki skal fylgja útfyllt eyðublað sem er að finna á vefnum logs.is Sérstök athygli er vakin á nýjum verðlaunaflokki; BARNAEFNI ÁRSINS. Allar nánari upplýsingar og reglur er að finna á www.logs.is Edduverðlaunin Atli Thoroddsen flugstjóri lést í sumar eftir þriggja ára baráttu við krabbamein. Þegar Atli dó var hann langt kominn með vinnslu bókar sem byggir á bloggfærslum hans eftir að hann greindist með krabbameinið og er mjög grafísk og frumleg í framsetningu, hönnuð af Jóni Erni Arnarsyni. Að ósk Atla tóku vinir og aðstand- endur hans sig saman eftir andlát hans og kláruðu verkefnið. Í bókinni eru mikilvægar ábendingar um það hvernig hægt er að bæta heilbrigðiskerfið svo það mæti betur sjúklingum með flókna og erfiða sjúkdóma. Atli var með verki í tíu ár og fór í brjósklos- aðgerð og bakspengingu áður en það uppgötvaðist að það var beinkrabbi sem hrjáði hann en ekki bakverkur! Bókin er þó fyrst og fremst óvenjulegur fagnaðaróður til lífsins og til- verunnar – frásögn fjölskylduföður sem missir ekki lífsgleðina og húmorinn þrátt fyrir banvænan sjúkdóm – en talið er að þriðji hver Íslendingur greinist með krabbamein á lífsleiðinni. Ásta Hallgrímsdóttir, ekkja Atla, skrifar hluta bókarinnar og eru hennar kaflar merktir Læknaritarinn. Bókin er til sölu í bókabúðum, í stórmörkuðum, skrifstofu Krafts í Skógar- hlíð 8 og á netinu á slóðinni www.kraftur.org. Allur ágóði af sölu bókarinnar rennur í sérstakan verkefnasjóð í nafni Atla hjá Krafti, stuðningsfélagi ungra einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein. ➜ BLOGGIÐ SEM VARÐ AÐ BÓK Úr bókinni Dagbók rokkstjörnu. Kaflarnir eru styttir með góðfús- legu leyfi.. Læknaritarinn Hvað finnst mér að eigi að vera næsta skref? Ég veit ekki hvort var meira af reiði eða undrun í röddinni á Atla þegar hann endurtók spurningu læknisins sem spengdi upp á honum bakið. Það hafði ekkert lagast við það; þrálátur verkurinn nísti enn. Við gerum ráð fyrir því að heilbrigðiskerfið virki. Við erum alltaf að stóla á sérfræðiþekkingu ókunnugra og viljum helst ekki fá spurningar frá flugstjóranum í 30 þúsund fetum: -Góðir farþegar. Búinn að prófa spindilfreiserana, rótorvektorana og ekkert virkar. Einhverjar hug- myndir svo við getum lent þessu? Ég er ekki róleg þegar kemur að þessum kafla sögunnar. Þó ég reyni þá titrar í mér röddin þegar ég tala um þetta. Titrar í mér hjartað. Kerfið klikkaði. Það verður að koma fram. Mér finnst líka mik- ilvægt að gagnrýni sé borin fram af stillingu og án reiði. Án ásökunar. Allir reyna að gera sitt besta. Það er mannlegt að gera mistök. En við höfðum engar hugmyndir um hvað ætti að gera næst. Í dag sé ég svo eftir því að hafa ekki farið með Atla í öll viðtölin og allar rannsóknirnar. Kannski hefði það engu breytt, en tveir spyrja fleiri spurninga en einn. En við treystum kerfinu. Tvö ein á biðstofu eftir mynda- töku í Dómus; tvö að treysta kerf- inu. Ég að lesa skýrsluna. Grunur um cancer. Þar kom það fyrir þetta orð. Krabbi. Krabbamein. Ágúst 2006. Ég sýndi Atla setninguna. Hann var ekki búinn að lesa þetta. Hann greip um höfuð sér. [...] Atli með þennan glampa í augum, í þessu góða formi, fullur af lífsvilja. Hann var svo sérstak- ur að öllu leyti; hann myndi taka þetta. Ef hægt væri að taka þennan kraft, þessa hvatvísi og umbreyta henni í baráttuafl gegn veikindum þá var Atli með það sem þurfti. [...] Atli var greindur með krabba- mein í ágúst 2006. Á myndunum, sem voru teknar ári áður, fyrir bakaðgerðina, sést æxlisvöxtur á hægri mjöðm. Læknunum yfirsást þetta mikilvæga atriði. Í stað þess að senda Atla í krabbameins- meðferð, spengdu þeir saman tvo hryggjarliði. Við vorum vongóð. Við treystum kerfinu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.