Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.11.2009, Qupperneq 96

Fréttablaðið - 21.11.2009, Qupperneq 96
68 21. nóvember 2009 LAUGARDAGUR Bjarni Sigurðsson fluttist til Íslands árið 2007 eftir að hann lauk keramiknámi í Danmörku. Hann starfar nú sem gjaldkeri í Íslands- banka, en sinnir listinni öllum stundum utan vinnu og heldur jólamarkað á vinnustofu sinni 28. og 29. nóvember. „Maður lifir ekki alveg á listinni en þegar ég réði mig inn í bankann sagði ég að keramikið væri númer eitt og bankinn númer tvö, svo það er tekið tillit til þess,“ segir Bjarni Sigurðsson, leirkerasmiður og gjaldkeri í Íslandsbanka. Bjarni lauk fjögurra ára keramiknámi frá Árósum í Danmörku og fluttist til Íslands 2007. Þá kom hann sér upp 45 fermetra vinnuaðstöðu og mun halda þar jólamarkað helgina 28. og 29. nóvember. „Ég hef tekið eftir því að það er ekki mikið um svokallaðar jóla- stofur, eða „julestue“ hér á landi, en í Danmörku er þetta hefð sem er mikið fjallað um. Fólki finnst gaman að koma á vinnustofuna og sjá hvernig umhverfið er. Maður leyfir þá gjarnan krökkunum að koma við leirinn og búa til eitt- hvað smá,“ útskýrir Bjarni og seg- ist aðallega einbeita sér að skúlpt- úrum frekar en nytjalist. „Ég geri til dæmis skálar og vasa í ýmsum stærðum. Íslands veggverk og hitaplatta byrjaði ég svo að gera fyrir ári, í hruninu. Þá var maður í miðjum látunum í bankanum og öllum svívirðingunum. Þegar maður kom heim hafði maður enga orku til að vinna í leirnum, en þá datt þetta inn og nú er ég að þróa þetta í kökubakka og fleira,“ segir Bjarni og vonast til að sjá sem flesta á jólamarkaði í vinnustofu sinni í Hrauntungu 20, Hafnar- firði, milli kl. 11 og 19 helgina 28. og 29. nóvember. alma@frettabladid.is Úr banka í keramik HELDUR JÓLAMARKAÐ Bjarni segist nýta allan tíma utan bankans í keramikið og heldur jólamarkað á vinnustofu sinni 28. og 29. nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Klámmyndastjarnan Jenna Jameson var gestur í spjallþætti Opruh Winfrey fyrir stuttu og sagði þar frá ferli sínum innan klámiðnaðarins. „Það mikilvægasta var að hafa farið í brjóstastækkun og ég hef farið í nokkrar slíkar aðgerðir. Það voru held ég stærstu mistök sem ég hef gert. Við þurft- um stanslaust að sóla okkur til að viðhalda brúnkunni, fara í vax og plokka augabrúnirn- ar. Þetta er stanslaus afskræming líkamans,“ sagði Jameson, en hún gaf út ævisögu sínar fyrir nokkru og þar kemur fram að hún var fórnalamb hópnauðgunar sem unglingsstúlka. Aðspurð sagðist hún oft efast um að hún hafi breytt rétt með því að láta leiðast út í þennan bransa. „Þetta var eitthvað sem ég gerði vel og ég vissi að ég gat stórgrætt. En ég efast oft um að þetta hafi verið rétt ákvörðun. Einhvern daginn mun ég þurfa að segja sonum mínum frá fortíð minni og ég kvíði því.“ Jenna hjá Opruh Sniglabandið sendir á mánudag frá sér sína fyrstu jólaplötu sem nefnist Jól, meiri jól. „Í fyrra gáfum við út jólalag sem vakti þó nokkra athygli sem heitir Jól, meiri jól. Upp úr því fórum við að spá í útgáfu og ákváðum að taka skrefið næstu jól og gefa út jóla- plötu,“ segir Pálmi Sigurhjart- arson. „Hljómsveitin vakti fyrst athygli fyrir jólalag fyrir mörg- um árum og fólk tengir þetta svo- lítið saman,“ segir Pálmi og á þar við Jólahjólið sem Stefán Hilm- arsson söng eftirminnilega. Það lag er einmitt að finna á nýju plöt- unni í endurhljóðblandaðri útgáfu. Upphaflega segulbandið með lag- inu fannst í geymslu og til þess að hressa upp á það þurfti að stinga því í bakaraofn og hita í sólar- hring í 50° hita. „Þetta er ráð sem er notað með gömul segulbönd,“ segir Pálmi, eins og ekkert sé eðli- legra. “ Hann segir að Stefán Hilmars þó ekkert koma við sögu á nýju plöt- unni, nema í Jólahjólinu. „Hann hlustaði á það með okkur og var mjög ánægður með útgáfuna sem var gerð,“ segir Pálmi og bætir við að Jólahjólið fái verðuga keppni- nauta á nýju plötunni. „Ég hugsa að nokkur lög gætu slagað vel upp í Jólahjólið.“ -fb Jólahjólið fær verðuga keppni SNIGLABANDIÐ Hljómsveitin Snigla- bandið gefur á mánudag út sína fyrstu jólaplötu. Nefnist hún Jól, meiri jól. Aðventudagar Sólheima 2009 19. nóvember, fimmtudagur. kl. 13:30. Sesseljuhús, Nemendur úr Ljósuborgarskóla kynna verkefni sín unnin á Sólheimum. kl. 14:30. Rauða torgið, kveikt á stóra jólatrénu 21. nóvember, laugardagur. kl. 14:00. Sólheimakirkja, tónleikar Sólheimakórsins, stjórnandi Vigdís Garðarsdóttir 28. nóvember, laugardagur. kl. 14:00. Íþróttaleikhús, Sögur og tónar, Herdís Anna Jónsdóttir og Steef Van Oosterhout leika á ýmis hljóðfæri og segja sögur kl. 13:00 - 16:00 Ingustofa, ullarþæfing, Umsjón: Ólafur Már Guðmundsson 5. desember, laugardagur. kl. 11:00. Sólheimakirkja, Jólastund Kirkjuskólans kl. 14:00. Græna kannan, Ívar Helgason og söngelska fjölskyldan 9. desember, miðvikudagur kl. 17:30 Sólheimakirkja, tónleikar Hörpukórsins á Selfossi, stjórnandi Jörg Sondermann 12. desember, laugardagur kl 14:00. Íþróttaleikhús, brúðuleikhús Bernd Ogrodnik Sýningin ber nafnið: Brot úr umbreytingu Opnunartímar á Aðventudögum Vala verslun og listhús: Virka daga kl. 14:30 til 18:00 og um helgar 14:00 til 17:00 Græna Kannan: Föstudaga, laugardaga og sunnudaga 14:00 til 17:00 Ingustofa samsýning: Opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 og um helgar 14:00 til 17:00 Vinnustofur: Virka daga kl. 09:00 til 17:00 Jólamarkaður Sólheima í Kringlunni, Reykjavík Opinn á opnunartíma Kringlunnar dagana 11. til 13. desember (föstudag, laugardag og sunnudag). Verið hjartanlega velkomin að Sólheimum Aðgangur er ókeypis á viðburði Aðventudaga http://www.solheimar.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.