Vikan


Vikan - 04.12.1969, Page 26

Vikan - 04.12.1969, Page 26
/. ' ," vlmí//w. '''//, ' " '' ' " ' , */: ' ', K ' Uu ■ : ■ Mmámrn p WWmW' WmmB. ■,?/.?" //■ H' ■liilil 'mmmé, 9 1 9 I IPllJll ♦ í „ / \ ,, '' ''',/. ■ ®í.i’Sí:áíii:í?: ’ '' ' •'' /'/•''" tégmíá ■ li i 'mS&m. fmmmm ■ iiill ■■■■llllBx-f'X'XZH ' WMMM v/ý. '„tímyífííÍK f : 1 / iliii Ví:"; ■ wm mm iiii í-í>// - ? /"///' f' ""\ ég tvisvar sinnum opnað fyrir ljósið í ganginum. En auðvitað verð ég að fara að nota ljósin meira, því mér hefur verið borað hér niður í jörðina, og það er ekki hægt að setja gamlar konur svona langt niður. Ég verð að klifra upp á borð í hvert skipti sem mér dettur í hug að opna eða loka glugga. Svo var svo kalt hérna þegar ég kom heim í haust, að ég neyddist til að fara niður á skrifstofu og heimta meiri hita. Jú, ég fékk hann, en um leið og það er búið að opna útihurðina og dyrnar hinum megin, þá er bara orðið ískalt inni hjá mér. Sennilega verð ég að fara aftur og heimta meira. Hann Kristján þarna í bæjar- stjórninni.. • jó, hann Kristján Tíma-maður... er nú frændi minn, svo það hlýtur að verða í lagi.“ Það væri of langt og torskilið mál að fara að láta Sigríði segja Sigríður leitar í fórum sínum að göml- um myndum af sér og hestum sínum. Hér sýnir hún hnakkinn sem var al- einn og yfirgefinn á Stórasandi í þrjú ár og fannst óskemmdur. Við komum í hús um daginn, og húsráðandinn ráðlagi okkur eindregið að fara' og tala við Hesta-Sigríði. Hún gæti ábyggi- lega sagt okkur sitt af hverju. Auðvitað vissum við hver Hesta-Sigríður var. Gamla kon- an sem hafði týnzt uppi á regin- fjöllum fyrir nokkrum árum, og allir töldu hana af þegar hún svo fannst á rölti tíu dögum seinna; búin að tapa hestinum, og alls ekki á þeirri skoðun, að hún hefði týnzt. Svo fórum við að heimsækja Jónu Sigríði Jónsdóttur, í kjall- araíbúð í austurbænum. Hún er sjötug og gengur í peysufötum. Hún var reyndar á undirkjóln- um þegar við komum, en eins og hún sagði sjálf, þá „. . . er það nú allt í lagi svona um há- bjartan daginn . . .“ Hún talar mikið og hleypur úr einu í annað „Á ég ekki að byrja á því að segja ykkur frá reisunni minni í sumar?" segir hún. „ ... hvurn andskotann ertu að gera, strák- ur?“ hvæsir hún svo á ljósmynd- arann er hann fer að mynda og ljósglamparnir blossa. „Ég vil bara ekki hafa að þú sért að þessu veseni fyrr en ég er búin að setja á mig skotthúfuna og koma gleraugunum a nefið á mér- Ég kæri þig ef þú hættir ekki. Ég er alltaf með skotthúf- una. Já, ég fer ekki einu sinni út í fiskbúð án þess að hafa hana á höfðinu." Svo setur hún upp skotthúfuna og sólgleraugun eftir að hafa greitt sér og snurfusað sig til. Hún er á eilífu rjátli um íbúð- ina, og skammast út í bæjaryfir- völdin vegna kuldans og kjall- arans. „Ég var nú í burtu í fjóra mánuði í sumar, og svo þegar ég kem heim, þá fæ ég bara reikning upp á 500 krónur. Jamm. Reikning fyrir ljós og hita, og ég sem er aldrei heima. Já, síðan ég kom hingað hef
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.