Vikan


Vikan - 04.12.1969, Blaðsíða 40

Vikan - 04.12.1969, Blaðsíða 40
Þegar öld sú er vér nú lifum reis úr tímans djúpi, voru lífs- hættir íslendinga allir aðrir en nú tíðkast. Meiri hluti lands- fólksins átti heimili í sveit. Byggðin var dreifð út til yztu nesja og inn til innstu dala. Jafn- vel á heiðum uppi höfðu ýmsir búsetu. Á stærri jörðum bjuggu þeir sem betur voru efnum búnir og höfðu oft margt hjúa. Jafnvel þó búin væru ekki stór, fram- fleyttu þau mörgu fólki. Þeir sem bezt voru vinnandi höfðu lítið kaup utan fæðis og nauð- synlegustu ígangsklæða. En aldr- að fólk og liðléttingar voru oft á meðgjöf, enda þótt fært væri til nokkurra starfa og nú mundi talið að laun mættu fyrir koma. Lífið var fábrotið, kröfur ekki miklar og víðast gætt mikillar sparsemi um hinar einföldustu lífsnauðsynjar. íslenzkt bændaþjóðfélag átti á þeim tíma afkomu sína að stór- um hlut ,,undir sól og regni“. 40 VIKAN-JÓLABLAÐ Sumaruppskeran var svo mjög háð veðráttu og viðhorf fólksins til vetrarkomu byggðist á því hversu tekizt hafði að safna forða, sem duga skyldi fram til næsta sólmánaðar. Ekki mun það hafa verið óal- gengt að suma þá sem þrengzt höfðu um hendur þjakaði nokk- ur vetrarkvíði. Úrræðin til að standast óvænt áföll, jafnvel að- eins mánaðar siglingateppu síðla vetrar, gátu orðið ýmsum ofraun. Vetrariðjan var formföst og vanabundin. Karlmenn gegndu skepnuhirðingu, konur settust að tóvinnu, aðrar en sú sem matseld annaðist, á stærri heim- ilum var sú iðja ein saman all umsvifamikil. Kona sú er til þeirra starfa var kvödd, reis jafnan fyrst úr rekkju að morgni, kveikti upp eld, sem falinn var í eldhúshlóðum frá kvöldinu áð- ur. Við þann eld voru tendruð ljósin á lýsislömpunum, sem lýstu fólkinu við störf þess, þeg- ar dagsbirtunnar naut ekki. Lampar þessir voru geymdir á lampaslá í eldhúsinu, voru þeir úr járni, aðrir en sá, sem borinn var til baðstofu og átti að lýsa þar á kvöldvökunni. Hann var úr kopar. Um sama leyti og eldakonan reis úr rekkju fóru þeir á kreik, sem hirða áttu fjósið. Oft var innangengt í það frá bænum, og var ljósið á fjóslampann þá tendrað við hlóðaglóðina. Eld- spýtur voru ekki til hversdags- nota. Að loknum þessum fyrstu morgunverkum fór annað heim- ilisfólk á fætur og gekk til vinnu sinnar, karlmenn til gegninga og annarra útiverka, en konur sett- ust við tóskap. Að loknum útiverkum, venju- lega í rökkurbyrjun, var allt fólk saman komið á baðstofu- palli. Algengt var að fá sér rökk- urblund. Börnin á bænum voyu þó sjaldan fús að ganga til þeirr- ar hvílu. Var ekki óalgengt að þau fengu til vökunnar með sér einhverja eldri konu, gjarnan ömmuna, sat hún þá með prjón- ana sína og sagði fram sögur eða ævintýri. Börnin sátu þétt um- hverfis hana, ýmist upp í rúm- inu, á bríkinni, eða kistlinum við stokkinn. Hljóð og hugfang- in fylgdust þau með ævintýrinu, sem opnaði fyrir þeim álfaborg- ina í hamrinum ofan við bæinn. Þrátt fyrir þessa hljóðlátu sögn gamallar konu, gátu allir notið hvíldar rökkurdúranna, þeir er þess óskuðu. Kyrrðin var svo rofin, þegar húsmóðirin sendi eina vinnukon- una fram til þess að ná í kopar- lampann á eldhússlánni, kveikja á honum í hlóðunum og koma með ljósið til baðstofu. Risu þá allir og tóku til vinnu sinnar. Konur þeyttu rokkinn, karlar undu af snældum eða þæfðu plögg milli handa. Sumir unnu hrosshár, kemdu ull og fengust við smíðar eða tréskurð. Einhver sá, sem góður taldist lesari, tók sér bók í hönd og las upphátt fyrir fólkið. Að lestri loknum var rætt um söguefnið og hafði þar hver sína meiningu. Héldu menn oft fast fram sinni skoðun. Við þessar umræður skýrðist söguþráðurinn betur en ella og niðurstaðan oft sú, að hver sögupersóna virtist hafa til síns ágætis nokkuð, og hlaut þá höfundur bókarinnar jafnframt sína viðurkenningu. Væri völ góðra kvæðamanna voru rímur fluttar á vökunni. Síðasti þáttur dagsins var svo kvöldhugvekjan, sem lesin var við mikla andakt og jafnan nokkurn sálmasöng. Á föstunni voru svo sungnir Passíusálmarn- ir, var ekki óalgengt að þeir sem eldri voru gætu tekið þátt í þess- ari athöfn án bókar. Að loknum þessum helgiiðk- unum var gengið til náða og ljós slökkt. Flestir munu hafa haft
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.