Vikan


Vikan - 04.12.1969, Page 84

Vikan - 04.12.1969, Page 84
Fullkomnasta gardínu- uppsetning á markaönum meö og án kappa fjölbreytt litaúrval ZETA Skúlagötu 61 slmar 25440 25441 um það fundi, hvernig við ætt- um að ná til jafnaldra þeirra. Allt í einu gerði ég mér það ljóst, þegar ég fór að hugsa um þessa fundi eftir á, að á þeim hafði ég setið og sagt: eigum við ekki að hafa þetta svona? Er það ekki þetta sem þið viljið? Og þau svöruðu já, og hafa sjálfsagt gert það af þægð. Nú langaði mig til að snúa dæminu við, því að þeg- ar tveir aðilar ræðast við, verða báðir að leggja eitthvað fram til að hægt sé að fá einhvern grund- völl til að standa á. Og ég spurði: hvað viljið þið leggja fram? Og þá komu fram þau svör, sem leiddu til, að við fórum að reyna þetta, að sjá hvað úr því yrði. Þá reis upp fólk og hrópaði: þarna þykjast þau búin að finna lausn, en þannig litum við ekki á mál- ið. í okkar augum voru þetta að- eins tilraunir. Margt mjög gott kom fram við þær, og til dæmis dáðist ég mjög að ræðumönnun- um, sem fullorðna fólkið hefur mest verið að hnjóða í. Megin- inntakið í ræðunum virtist mér vera þessi stóra spurning, sem ég held, að margt ungt fólk velti nú fyrir sér. Það spyr okkur, full- orðna fólkið: Hversvegna lifið þið í tveim heimum? Þið segizt trúa einu, en breytið á allt ann- an veg. Er hægt að brúa þetta bil? Er hún röng þessi kenning, sem þið lifið eftir, kristna kenn- ingin, eða breytið þið rangt? Það kom greinilega fram í ræðunum að unglingarnir töldu, að það væri einmitt hræsnin, sem væri alltof áberandi í fari okkar. Og hálfvelgjan. Eg held líka, að upp- þotin og óróinn, sem verið hefur í krökkunum undanfarið, ég held hann stafi af þessu. Þau segja: við neitum þvi, að þið steypið okkur í það form, sem hefur sýnt sig í að duga illa. Og þá benda þau okkur á það, að við höfum nú ekki af geysimiklu að státa; heimurinn verið lagður í rúst í tvígang á þessari öld. óhræddur við hávaðann — Þarna kemur sem sagt fram sami andinn og í demonstrasjón- unum. — Já. Nú, og sumt gerðu þau til þess að fólk hrykki við; það þarf stundum að gera hlutina dá- lítið harkalega, svo að fólk fari að hugsa um þá. Það gerðu þau, og ég held að þeim hafi tekizt þetta mjög vel. Einn þátt tóku þau upp, sem ég held að eigi framtíð fyrir sér í kirkjunni; það var samræðuþáttur milli kirkju- gesta og þess, sem samkomunni stjórnaði hverju sinni. Þá ræddu þau það, sem prédikarinn hafði sagt af stólnum, báðu hreinlega um svör. Það var ákaflega skemmtilegt og áberandi, hvað þau spurðu skynsamlega. Við ræddum nú popmessurnar vítt og breitt, hrifninguna sem þær vöktu hjá sumum og hneykslun hjá öðrum, eins og við var að búast. Það hefur lengstum verið skilningur og meining kirkjurækinna íslendinga, að guðsþjónustur eigi að vera frem- ur dapurlegar samkomur og helzt leiðinlegar, og ég drap á það sem ég hafði heyrt á bæjar- skrafi, að hávaðinn, sem kvað hafa verið með meira móti við popmessurnar, hefði komið hvað verst við taugar sumra. Séra Sigurður Haukur hristir höfuðið og brosir góðlátlega. — Eg held sjálfur, að kirkj- unni sé enginn voði búinn af þeim hávaða. Eg skil ekki, hvað það er sem heimtar að guðsþjón- ustan þurfi endilega að vera hljóð stund. Ég held, að aðalat- riðið sé að kirkjan nái til fólks- ins með þau fræ, sem hún hefur til að sá, ef hún trúir því þá, að þau eigi eitthvað erindi meðal manna. Ég held það, og ég held að þýðingarmeira sé að ná til unga fólksins heldur en að hafa hljóða stund fyrir gamalt fólk. En æskunni fylgir auðvitað alltaf dálítill hávaði, hjá því verður ekki komizt. Rétttrúnaður — frjálslyndi — í þessu felst að vaxandi áherzla sé lögð á siðfræðilegan boðskap kirkjunnar. Ber að skilja það svo, að þessi gamla mystík kringum heilaga þrenn- ingu, guðdóm Krists og fleira í því sambandi sé að hverfa í skuggann? — Um þetta eru uppi tvær stefnur í kirkjunni. Báðar eru sammála um, að kirkjan þurfi að taka alvarlega við sér, ef hún á ekki að lenda algerlega út af lífsveginum. Um leiðirnar til úrbóta hafa komið fram tvö sjón- armið. Annað þetta: Við höfum verið of veraldleg, við þurfum að snúa við á braut okkar, leita fornra fyrirmynda til að gefa kirkjunni aukna helgi. Hin stefn- an segir aftur sem svo: Við höf- um látið okkur of tíðrætt um hluti morgundagsins, eða, ef ég mætti orða það þannig, það sem skeður eftir að við erum horfin af þessu jarðsviði. Við erum stöð- ugt að tala um það, sem verði eftir dauðann, en ég veit ekki til að við höfum mikinn aðgang að landabréfum að handan. Hins vegar hættir okkur til að gleyma því, að Kristur var sendur hing- að, hingað til jarðarinnar með boðskap sinn, og því hlýtur sá boðskapur að eiga að framkvæm- ast hér, á jörðinni, enda talar hann um guðsríki hér. Þessar tvær stefnur hafa verið flokkað- ar sem orþódoxía og líberalismi. — Og hvor er í sókn? — Eg held sjálfur að sú stefn- an, sem hér hefur verið kennd við frjálslyndi, sé á undanhaldi meðal prestanna, en í sókn hjá fólkinu. Þetta finnst mér ákaf- lega einkennilegt, og ákaflega varhugavert. Svíar höfðu hákirkjustefnuna 84 VIKAN-JÓLABLAÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.