Vikan - 04.12.1969, Page 85
BÚSÁHÖLD
LAUGAVEGI 59 SlMI 23349
mikið á oddinum um skeið, en
eru nú farnir að hverfa frá henni,
en eins og svo oft áður og í svo
mörgu öðru, þá erum við hér
nokkrum árum á eftir í þróun-
inni. Það er eins og það taki allt-
af nokkur ár fyrir allar nýjar
stefnur, að komast hingað utan
úr heimi. Eins og nú, þegar Sví-
ar eru að hætta við hákirkju-
stefnuna, þá er tímabil hennar að
byrja hjá okkur. Mér virðast
yngstu prestarnir flestir hneigj-
ast í þessa átt, og prédikanir
þeirra eru mjög keimlílcar. Svo
að þetta virðist vera þróunin. Og
við hana er ég hræddur.
Frjálsar samræðustundir
— Gerirðu ráð fyrir, að hald-
ið verði áfram með popmessurn-
ar?
— Já, það vona ég að verði,
og við höldum áfram að leita..
Eg held, að kirkjan verði að gera
þetta til að viðhalda því góða
sambandi, sem hún hefur náð við
ungt fólk, ef ég má orða það svo.
í þessu sambandi vil ég minnast
á framtak kennara eins í Hamra-
hlíðarskólanum, sem tók upp á
því að hafa frjálsar samræðu-
stundir milli prests og bekkj-
anna, þar sem klerkurinn kom
ekki til að prédika, öðru vísi en
þá þannig, að prédikunin fólst í
samtölum við nemendurna. Þetta
voru ákaflega skemmtilegar
stundir, og þau spyrja miklu
gáfulegar og af meiri heilindum
en maður hefði látið sér detta í
hug að óreyndu.
— Höfðuð þið fyrirmyndir
einhversstaðar frá, varðandi
þessar nýjungar?
— Já, það má auðvitað segja.
Það er orðið mjög langt síðan ég
heyrði talað um þetta fyrst. Það
var lögregluþjónn í Stokkhólmi,
sem mun hafa verið hvað fyrst-
ur til að ríða á vaðið með þetta,
hafði þetta á laugardagskvöldum
kl. hálftólí, þegar danshúsum
var lokað, þá kallaði hann á
krakkana til kirkju. Vildi láta
þau fara heim með önnur áhrjf,
en þau urðu fyrir í skemmtihús-
unum. Þeir, hann og klerkurinn,
sem að þessu stóð með honum,
voru alveg óragir við að fá
krakkana inn með því að láta
tónlistarmenn, sem krakkarnir
dáðu, annast músikina. Gersam-
lega óhræddir. Og ég held, að
kirkjan þurfi ekki að vera svo
mjög hrædd við að hún vanhelg-
ist við að koma í námunda við
fólk. Eg trúi því ekki. Það sýndi
sig líka í umræðunum um þessa
hluti hér, að mest bar á skrifum
og látum frá fólki, sem hafði
ekki hugmynd um hvað það tal-
aði. Þetta var fólk, sem ekki
hafði verið viðstatt guðþjónust-
urnar, og hóf sitt mál alltaf
sem svo: Einhver sagði mér, að
svona hefði það verið. En það lét
ekki svo lítið að koma í kirkju
og sjá sjálft.
— Þetta hefur verið reynt
víða um lönd.
VIKAN-JÓLABLAÐ 85
7
Hentugar jólagjafir
Greiðslusloppar í óvenju fallegu úrvali. AÍ'j'r stærðir, margir litir,
verðið hagstætt. Buxnadragtir frá Slimma í glæsile5u urval' á tán-
inga og fullorðna. Síðbuxur og pils úr vönduðum ullarefnunt. S(ð-
buxur og vesti úr flaueli. Skemmtilegur og vinsæll heimaklæðnaður.
Verið með frá byrjun og fylgizt með tízkunni. Síðdegis- og kvöld-
kjólar. Síðir samkvæmiskjólar. Síð og stutt samkvæmispils.
Verzlið hjá okkur fyrir jólin, hér eru næg bílastæði, auðvitað ( hægri-
umferð. Strætisvagnar á fjölmörgum leiðum stanza rétt við verzlun-
ina eða á Hlemmtorgi.
VANDAÐAR VÖRUR VERÐIÐ HAGST/ÍTT
Með jólakveðju.
Tlzkuverzlunin Guðrún
Rauðarárstig 1, sími 15077.
_________