Vikan - 04.12.1969, Síða 99
til ættingja og vina, og kuldinn
sem bítur á kinnarnar hverfur
af eftirvæntingu. Klukkan eitt
eftir hádegi fer fólk til kirkju,
skólabörnin lesa úr jólaguðs-
spjallinu, eitt í senn, og síðan
syngja þau sálma. Allir eru í
splunkunýjum og fínum fötum,
og lifandi ljós setja hátíðablæ á
heimilin.
Klukkan fjögur hittast flestir
íbúar þorpsins aftur í kirkjunni
og hlýða á hina eiginlegu jóla-
guðsþjónustu. Jólatré eru tendr-
uð við altarið, presturinn les
jólaguðsspjallið, og að lokum
standa allir á fætur og syngja
saman grænlenzka jólasálminn,
Cuterput. Eftir það hraða allir
sér heim til að borða jólamat-
inn, hreindýrakjöt og einhvern
góðan ábætisrétt. Eftir matinn
sezt fjölskyldan við jólatréð með
jólagjafirnar.
Seinna um kvöldið fara börn-
in út með heimatilbúnar pappírs-
luktir, ganga hús frá húsi og
syngja jólasálma fyrir utan
hvert heimili. Þegar börnin
koma heim, eru vasar þeirra
fullir af kökum, sem þau hafa
fengið fyrir söng sinn. Þreytt og
hamingjusöm fara þau svo að
sofa. En þá tekur annar hópur
af ungu fólki við, sem gengur
syngjandi hús frá húsi. Það er
gamall grænlenzkur siður, sem
mikið er lagt upp úr. Margir láta
þá tvö logandi ljós út í glugg-
ann, til merkis um, að íbúarnir
hafi vaknað og séu að hlusta. Á
þennan hótt óska Grænlending-
ar Judtdlime pivluaritse — eða
gleðilegra jóla.
ÞANNIG ERU JÓLASIÐIRNIR
ólíkir í hinum mörgu lönd-
um heimsins og jafnvel með-
al hinna ýmsu heimila í hverju
landi. Menn leita hamingjunnar
á margvíslegan hátt. Sumir finna
hana, en aðrir leita til einskis.
Og kannski er til einhver, sem
alls ekki leitar.
En yfir fæðingarstað frelsar-
ans í Betlehem er lítil og óásjá-
leg kirkja, og allir sem þangað
koma finna hina sönnu guðrækn-
islegu kennd. Þar inni ríkir sér-
stök og heilnæm ró, og þótt
kirkjan geti ekki státað af há-
um turnum og spírum og sé ekki
skreytt með ríkulegum útskurði
eða myndum eftir fræga meist-
ara, — þá minnir hún í yfirlætis-
leysi sínu enn frekar en aðrar
kirkjur á barnið, sem fæddist í
fjárhúsinu í Betlehem á jólanótt.
ALLT Á SAMA STAÐ
Þegar bakstrinum lýkur, er gólf-
þvottur næstur á dagskrá.
FINNSKU SNJOHJOLBARDARNIR
NOKIR
ÞAÐ ERU FINNSKU
HJÓLBARÐARNIR
sem slegið liafa í gegn
hér á landi.
HAKA
Það er hið óviðjafnan-
lega snjómynstur, sem
gerir þá eftirsótta.
BIFREIDA-
EIGENDUR
MUNIÐ AÐ NÆG
BÍLASTÆÐI ERU
FYRIR VIÐSKIPTA-
VINI Á HORNI
RAUÐARÁRSTÍGS
OG GRETTISGÖTU.
FLESTAR STÆRÐIR
SNJÓHJÓLBARÐA
FYRIRLIGGJANDI.
GERIÐ SNJÓHJÓLBARÐAKAUPIN TÍMANLEGA
SENDUM í KRÖFU
EGILL VILHJÁLMSSON HF.
Laugavegi 118 — Sími 2-22-40
ÍSLENZKAR
HINIR
KAPUR OG JAKKAR
AUSTURSTRÆTI
VIKAN-JÓLABLAÐ 99