Vikan - 17.12.1987, Blaðsíða 10
Skemmtun,
skrum eða
d ■ II Ólafur Stephenser
svartigalaur? sssf
Ólafur Stephensen hefur sett
saman bók um auglýsingar
og auglýsingatækni, sem
nefnist „Nýtt og betra“
- skemmtun, skrum eða
svartigaldur. Þetta er önnur
bókin, sem kemur út á ís-
lensku um auglýsingamál,
en sú fýrsta var Auglýsinga-
bókin eftir dr. Jóh. Ágústs-
son sem kom út árið 1947,
eða fýrir 40 árum.
í bók sinni fer Ólafur á
kostum, eins og við mátti búast.
Bókin er stútfull af heilræðum,
útskýringum, fullyrðingum og
jafhvel skömmum. Meðal annars
heldur Ólafúr því fram að ís-
lenskir blaða- og tímaritaútgef-
AUOL?SÍnSaBOK (jfcFgBTEPHÉ^tEN
SKEMMTUN, SKRUM EDA SVARTIGALDUR,
. '■
1,^ j mml Im m \ ■
IM'
W Q Bf]
endur séu að selja auglýsendum
svikna vöru. Hann fullyrðir að
íslenskur útflutningur stefhi í
markaðseinangrun, ef ekki verði
brugðist við nú þegar, og aug-
lýsendur hérlendis séu að tapa
stórfé vegna óskipulagðra
vinnubragða sem láti stjórnast
af lögmálum kunningjaþjóðfé-
lagsins en ekki af markaðslög-
málum.
„Nýtt og betra“ er skemmti-
leg aflestrar. Hún fær lesandann
ósjálffátt til að gera samanburð,
en það er einmitt kjarni auglýs-
ingastarfsins að áliti höfundar.
Ólafur tekur upp hanskann fyrir
samanburð í auglýsingum, telur
hann eiga fullan rétt á sér, ef
hann sé gerður á heiðarlegan
hátt.
Um Ieið og Nýtt og betra“ er
þörf ádrepa kemur bókin til
með að vera handbók fyrir
stjórnendur fyrirtækja og stofn-
ana, aðgengilegt uppflettirit um
auglýsingaáætlanir, auglýsinga-
birtingar, samstarf við auglýs-
ingastofu, markaðssetningu og
sölutækni. f bókinni eru leið-
beiningar um gerð sjónvarps-
handrita, gerð handrita fyrir út-
varpsauglýsingar, skipulagningu
efhis í póstsölu (direct mail) og
hvernig eigi að reikna út höfða-
tölu í blöðum og tímaritum.
BÆKUR /
í upphafi bókar sinnar segir
Ólafur m.a.: „Það er stundum
erfitt að vera auglýsingamaður.
Ekki vegna þess að starfið sé
leiðinlegt. Síður en svo. Auglýs-
ingastarfið gefur þér tækifæri til
að takast á við fjölbreyttari
vandamál en flest önnur störf
sem ég þekki. Það er sambland
af miskunnarleysi fjölmiðlanna,
sköpunargleði listamannsins og
tilætlunarsemi sölumennskunn-
ar. Það sem er erfiðast við starf-
ið er þegar framkvæmdastjóri
fyrirtækis, sem búið er að vera í
viðskiptum hjá auglýsingastof-
unni þinni í nokkur ár, skilgrein-
ir starf þitt þannig: 85% rugl og
15% þjónustugjald. Þá er erfitt
að vera auglýsingamaður!"
Ólafur Stephensen er vafa-
laust einn þekktasti auglýsinga-
maður okkar. Hann er ábyrgur
fýrir mörgum athyglisverðum
auglýsingunt hérlendis undan-
farin ár - og jafnframt þeim um-
deildustu. Ólafur er menntaður
í Bandaríkjunum. Hann stund-
aði nám í almenningstengslum,
áróðurstækni og markaðsfræð-
um við Columbia háskólann í
New York. Það má segja að með
Ólafl hafi orðið tímamót í aug-
lýsingastarfi hérlendis. Tímabil
markaðsmannsins tók við af
tímabili teiknarans. - ÞJM
Við viljum vekja athygli ykkar sem útivist stunda
áBarbourfatnaði. Durhamjakkinn hefurþessa
kosti: Hann er framleiddur úr laufléttu bómullar-
efni, hann er hlýr og hleypir frá sér raka, hann
er vatnsheldur og einstaklega sterkur, hann er
fallegur og léttur og þegar allra veðra er von er
hann tvímælalaust hentugasti jakki í lengri
eða skemmri ferðir.
Sendum í póstkröfu
Hafnarstræti 5, sími: 16760.
10 VIKAN