Vikan - 17.12.1987, Page 60
Waldorfsalat
fyrir 8-10 manns
250-300 g majones
1/4 I þeyttur rjómi
salt
sítrónusafi
sykur
3-4 stilkar sellerf, sneitt fínt
3 afhýdd, fínsöxuð epli
1 meðalstór klasi vlnber, skorin í
tvennt og steinarnir teknir úr
50 g grófsaxaðir valhnetukjarnar
Smávegis af hráefninu og þunnar
sneiðar af rauðu epli til skrauts.
Majonesi og rjóma hrært sam-
an og sfðan bragðbætt. Hráefn-
inu blandað þar í (geymið smá-
vegis fyrir skraut).
Uppskrift fyrir 8
1 gæs (4-5 kg)
1-2 tsk. pipar
5 tsk. salt
7-8 flysjuð niðursneldd epli
300 g sveskjur
smjör til að pensla með
3/4 I sjóðandi vatn eða
hænsnakjötssoð
Nuddið hreinsaða gæs að innan
með salti og fyllið síðan með
eplasneiðum og sveskjum.
Saumið fyrir opið, dragið háls-
skinnið aftur á bak og festið það
þar með trépinnum (tannstöngl-
um). Snúið vængjunum þannig
að gæsin liggi á þeim. Leggið
gæsina í smurt eldfast form og
látið neðst í rúmlega 200 gráðu
heitan ofn. Eftir u.þ.b. 45 mín.
steikingu er sjóðandi vatni hellt út
á (eða kjötsoðinu) og hitinn lækk-
aður niður í tæpar 200 gráður.
Látið steikjast í 2V£ til 3 klst. I
viðbót. Gætið að því að ausa
soðinu reglulega yfir gæsina
meðan á steikingu stendur.
Að steikingu lokinni er gæsin
tekin úrforminu og álpappír látinn
utan um hana og viskustykki þar
utan um.
Sósan: Síið soðið og veiðið fit-
una frá. Bætið smávegis sósulit í
soðið til að auðveldara sé að
skilja fituna frá. Jafnið með sósu-
jafningi. Hrærið vel allan tímann
og látið sjóða vandlega. Bragð-
bætið með salti, pipar og e.t.v.
smávegis smjöri. Mjög gott er að
hræra smávegis af rifsberjasultu
út í sósuna áður en hún er borin
fram.
Meðlæti: Rauðkál, brúnaðar
kartöflur og Waldorfsalat.
Ath! Ef gæsin er matreidd tals-
vert áður en hún er borin fram,
setjið hana þá aftur inn í ofn í 200
gráðu hita þar til hún er orðin
gegnheit á ný. Gott er að grilla
hana llka í fáeinar minútur til að
skorpan verði hörð og girnileg.
STILLTU Á STJÖRNUNA
Stjarnan er stillt á
Þig
FM 102,2 og 104
Auglýsingasími 689910
60