Vikan


Vikan - 13.06.1991, Blaðsíða 4

Vikan - 13.06.1991, Blaðsíða 4
13. JUNI 1991 12. TBL. 53. ÁRG VERÐ KR. 325 VIKAN kostar kr. 247 eintakið ef greitt er með gíró en kr. 211 ef greitt er með VISA eða EURO. Áskriftargjaldið er innheimt fjórum sinnum á ári, sex blöð í senn. Athygli skal vakin á því að greiða má áskriftina með EURO eða VISA og er það raunar æskilegasti greiðslumátinn. Aðrir fá senda gíróseðla. VIKAN kemur út aðra hverja viku. Tekið er á móti áskriftarbeiðnum í síma 91-83122. Útgefandi: SAM-útgáfan. Framkvæmdastjóri: Sigurður Fossan Þorleifsson Markaðsstjóri: Pétur Steinn Guðmundsson Ritstjóri og ábm.: Þórarinn Jón Magnússon Auglýsingastjóri: Helga Benediktsdóttir Höfundar efnis í þessu tölublaði: Jóna Rúna Kvaran Þorgerður Traustadóttir Þorsteinn Eggertsson Guðný Þ. Magnúsdóttir Þórdís Bachmann Hjalti Jón Sveinsson Anna S. Björnsdóttir Geir Viðar Vilhjálmsson Þorsteinn Erlingsson Stephen King Þórarinn Jón Magnússon Gísli Ólafsson Guðjón Baldvinsson Helga Möller Christof Wehmeier Lína Rut Karlsdóttir Ásbjörn Pálsson Guðmundur H. Halldórsson Sir Francis Bacon Myndir í þessu tölublaði: Magnús Hjörleifsson Bragi Þ. Jósefsson Hjalti Jón Sveinsson Þórarinn Jón Magnússon Sigurður Stefán Jónsson Þorsteinn Erlingsson Ragnar Th. Sigurðsson Ólafur Guðlaugsson Útlitsteikning: Þórarinn Jón Magnússon og Auglýsingastofa Brynjars Ragnarssonar. Setning og umbrot: SAM-setning: Árni Pétursson, Pála Klein og Sigríður Friðjónsdóttir Filmuvinna, prentun, bókband' Oddi hf. Forsíðumyndina tók Magnús Hjörleifsson af Lindu Pétursdóttur. Förðun: Kristín Stefánsdóttir með No Name snyrtivörum. Hárgreiðsla: Mjöll Danielsdóttir, Hár og förðun, Faxafeni. HAFT EFTIR HEIMSPEKINGUNUM: SIR FRANCIS BACON Breski stjórnmálamaður- inn Sir Francis Bacon (1561-1626) fóráþing 23 ára gamall, lagði stund á lögfræði, var innsiglisvöröur Elisabetar I. drottningar og fjármálaráðherra í tíð Jakobs konungs I. Hann hafði mikinn áhuga á vísindum síns tíma og kenndi heimspeki sína við reynsluheiminn; það sem hægt er að sjá og þreifa á, en að vissu marki þó. Við segjum til dæmis ennþá að sólin komi upp eða setjist vegna þess að það lítur þannig út. Þetta er vegna þess að menn eru sjálfselskir í eðli sínu og hafa tilhneigingu til aö halda að allt snúist um þá. Bacon hafði líka, hvort sem honum líkaði betur eða verr, mikinn áhuga á peningum og endaði stjórn- málaferil sinn á að vera fund- inn sekur um spillingu og mútuþægni. Þekktustu verk hans eru ritgerðir hans og bók- in Novum Organum (Nýtt skipulag). Eftirfarandi setning- ar er að finna í verkum hans. ■ Sá sem byrjar viss í sinni sök endar með efasemdum en sá sem lætur sér nægja að byrja með efasemdum endar viss í sinni sök. ■ Það eru slæmir uppgötvar- ar sem halda að ekkert land sé fram undan þar sem þeir sjá bara hafið. ■ „Hvað er sannleikur?1' spurði Pílatus spaugandi og nennti ekki að bíða eftir svari. ■ Sá sem talar um allt sem hann þekkir til er vís til að tala einnig um það sem hann þekkir ekkert til. ■ Eiginkonan er ástkona unga mannsins, félagi þess miðaldra og hjúkrunarkona þess gamla. ■ Tækifærið skapar þjófinn. ■ Sumir eru leiknir í að stokka spil en eru þó afleitir spilamenn. ■ Það er í eðli öfgafullrar sjálfselsku að kveikja í húsinu til að spæla sér egg. ■ Þannig er speki krókódíls- ins - að tárfella meðan hann rífur eitthvað í sig. ■ Hefndin er eins konar villt réttlæti. ■ Þögnin er dyggð heimsk- ingjans. ■ Besta dyggð meðlætisins er hófsemi, besta dyggð mót- lætisins er styrkur. ■ Auðæfi hafa hneppt fleiri í þrældóm en þau hafa frelsað. ■ Góð siðfræði er aðeins þjónustustúlka trúarbragð- anna. ■ Vonin er góð í morgunmat en afleit til kvöldverðar. ■ Lögin eru eins og köngul- lóarvefir. Litlu flugurnar festast í þeim en þær stóru brjótast í gegnum þá. O co O o ■ Öfgar eiga hvergi heima nema í ástarhjali. ■ Það er undarleg löngun að sækja í völd og missa við það persónufrelsi sitt. ■ í mannlegu eðli er meira um apahátt en vit. ■ Ef fjallið kemur ekki til Múhameðs verður Múhameð að fara til fjallsins. ■ Yfirborðskennd heimspeki fær suma menn til að fjarlægj- ast trúna en djúp heimspeki færir menn nær henni. ■ Það felst viss hjátrú í því að forðast hjátrú. ■ Sá sem sækist eftir einveru og nýtur hennar er annaðhvort villidýr eða guðleg vera. ■ Grunsemdir meðal hugs- ana eru eins og leðurblökur meðal fugla. ■ Mannleg náttúra er oft falin, stundum bæld niður en sjald- an kæfö. ■ Það er ekki mikið um vin- áttu í heiminum og allra síst á meðal jafningja. ■ Að eyða of miklum tíma í rannsóknir sýnir aðeins dug- leysi. ■ Greindir menn eiga það til að búa til fleiri tækifæri en þau sem verða á vegi þeirra. ■ Sá sem lýgur er furðu hug- rakkur gagnvart almættinu úr því að hann er þessi heigull gagnvart sjálfum sér. 4 VIKAN 12. TBL.1991
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.